Menning

RAX Augnablik: „Maður var farinn að halda að maður væri gjörsamlega klikkaður“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ragnar Axelsson ljósmyndari hefur gaman að því að sjá andlit, dýr og annað í útlínum og sprungum íslensku jöklanna.
Ragnar Axelsson ljósmyndari hefur gaman að því að sjá andlit, dýr og annað í útlínum og sprungum íslensku jöklanna. RAX

Ragnar Axelsson ljósmyndari ólst upp við jöklana. Síðustu áratugi hefur hann flogið ótal ferðir yfir jökla landsins og náð þar stórkostlegum myndum. Hann segir frá þeim í þessum nýja þætti af RAX Augnablik.

„Ég ólst upp undir jökli og mældi jökla sem krakki og fór á hestbaki yfir jökulá að mæla tíu ára gamall. Þú yrðir tekinn af foreldrum þínum í dag ef þú gerðir þetta. Ég var bara í indíánaleik, þetta var bara ævintýri,“ segir RAX um fyrstu kynni sín af jöklunum.

„Jöklar fyrir mér eru alveg stórkostlegt fyrirbæri.“

Eins og í bíómynd

Ljósmyndarinn hefur einstaklega gaman að því að sjá andlit, dýr og annað í útlínum, skuggum og sprungum íslensku jöklanna.

„Þegar ég sá jöklana og Jökulsárlónið í fyrsta skipti, þá var eins og þetta væri einhver lifandi vera.“

RAX endaði á að gera heila bók tileinkaða jöklum, hans óður til íslensku jöklanna sem eru að bráðna.

„Þegar maður flýgur yfir jökulinn í svona lágri birtu þá sér maður hvernig skuggarnir verða langir og formin falleg og þá er eins og það er eins og það sé dreki eða ormur að brjótast upp. Það eru alls konar ævintýri í jöklinum sem eru svo heillandi við hann ef maður fer svona með því hugarfari eins og maður sé að fara í bíómynd.“

Hann viðurkennir að hafa haldið um tíma að hann væri að verða klikkaður, þegar hann sá allar verurnar í jöklunum en ferðafélagar hans í flugvélinni sáu það ekki. 

Hér fyrir neðan má heyra frásögnina í heild sinni. RAX Augnablik eru örþættir og þátturinn Jöklar Íslands er um sex mínútur. 

Í þættinum segir hann meðal annars frá því þegar hann týndi Ómari Ragnarssyni í augnablik, leitinni að forsíðumyndinni á bókina Jöklar og drekanum sem hann fann í einni af flugferðunum sínum.

Klippa: RAX Augnablik - Íslensku jöklarnir

Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2 Maraþon. 

Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.


Tengdar fréttir

„Ég var alveg viss um að ég myndi deyja næst“

„Mér líður alveg bærilega en þetta er búið að taka ótrúlega langan tíma,“ segir Pétur Reynisson, sem nýlega lauk endurhæfingu á Reykjalundi vegna Covid-19 eftirkasta. Pétur missti báða foreldra sína í vegna Covid-19 og voru þau fyrst til að falla frá vegna faraldursins hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.