Innlent

Ljósmæður fengu fyrstu köku ársins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Helgi Vilhjálmsson, forstjóri Góu, María Guðrún Þórisdóttir, yfirljósmóðir, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Garðar Sveinn Tranberg, bakarameistari, og Sigurbjörg Sigþórsdóttir, formaður Landssambands bakarameistara.
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Helgi Vilhjálmsson, forstjóri Góu, María Guðrún Þórisdóttir, yfirljósmóðir, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Garðar Sveinn Tranberg, bakarameistari, og Sigurbjörg Sigþórsdóttir, formaður Landssambands bakarameistara. Birgir Ísleifur Gunnarsson

Ljósmæður og starfsfólk fæðingarþjónustu Landspítala tóku á móti fyrstu Köku ársins 2021. Landssamband bakarameistara efndi venju samkvæmt til árlegrar keppni um Köku ársins.

Sigurvegari keppninnar var Garðar Sveinn Tranberg, bakarameistari hjá Bakarameistaranum og er kaka Garðars Góu hraunkaka með karamellumús og ferskju- og ástaraldinfrómas.

Landsamband bakarameistara heldur keppnina árlega í samstarfi við styrktaraðila. Í fyrra var sá Nói Siríus og gerð krafa um að Nóa tromp yrði í kökunni. Þá varð kaka Sigurðar Alfreðs Ingvarssonar í bakaríi Jóa Fel valin sú besta. 

Í tilkynningu segir að sala á kökunni hefjist í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um allt land í dag í tilefni konudagsins sem er á sunnudaginn. Kaka ársins verður til sölu það sem eftir er ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×