Eldri Frakkar fá bóluefni AstraZeneca Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 2. mars 2021 20:00 Frakkar eru hluti af samstarfi Evrópusambandsins um bóluefni. Vísir/vilhelm Frakklandsstjórn snerist í dag hugur og ákvað að eldra fólk með undirliggjandi sjúkdóma fái nú bóluefni AstraZeneca við kórónuveirunni.
Frakkar heimiluðu notkun bóluefnisins fyrir fólk undir 65 ára aldri í janúar og sögðu skort á gögnum um virkni þess fyrir eldra fólk. Fleiri Evrópusambandsríki tóku sömu afstöðu, meðal annars Þýskaland. Lýðheilsustofnun Englands birti í gær bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar sem sýndu að einn skammtur af AstraZeneca-bóluefninu minnki líkur á að fólk yfir áttræðu þurfi á innlögn á sjúkrahús að halda um áttatíu prósent. Upplýsingafulltrúi frönsku ríkisstjórnarinnar sagði þetta mikilvægar fréttir, enda sé staðan enn afar slæm þar í landi og frekari takmarkanir jafnvel yfirvofandi. „Þetta er stórt skref. Olivier Veran [heilbrigðisráðherra] sagði frá því í gær að í mars gætum við verið búin að bólusetja níu milljónir landsmanna,“ sagði Gabriel Attal. Frakkar eru hluti af samstarfi Evrópusambandsins um bóluefni en sambandið hefur sætt gagnrýni vegna hægagangs. Vandræði við framleiðslu og dreifingu bóluefna Pfizer og Moderna hafa meðal annars valdið töfum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Frakkland Bólusetningar Mest lesið Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Egill Þór er látinn Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum Innlent Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Erlent Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Erlent Yfirgaf jólatónleika í sjúkrabíl Innlent „Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Innlent „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Innlent Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Erlent Fleiri fréttir Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Sjá meira