Frakkland

Frakkland

Höfuðborg: París. Mannfjöldi: 65,6 milljónir (2025). Flatarmál: 551.695 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Neitaði að sam­þykkja af­sögn vegna mót­mælanna

Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn innanríkisráðherrans Laurent Nunez í gær eftir gríðarleg mótmæli víða um landið um helgina. Alda skemmdarverka og rána hélt áfram í gærkvöldi og í nótt og yfir hundrað manns voru handteknir í höfuðborginni París í nótt.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Ég vel þig núna, alltaf og enn­þá“

„Við eigum mjög margt sameiginlegt en erum líka mjög ólík á ákveðinn hátt; ég er fiðrildið sem fær yfirleitt 150 hugmyndir daglega, fylgi innsæinu og sköpunarkraftinum, en hann er ótrúlega góður í að koma hlutunum niður á jörðina og keyra þá áfram án þess að gefast upp. Það er samspil sem virkar alveg ótrúlega vel,“ segja hjónin Eva Dögg Rúnarsdóttir og Stefán Darri Þórsson sem giftu sig með pomp og prakt í Frakklandi í haust.

Lífið
Fréttamynd

Elma seld til út­landa

Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Gellustælar og ís­lenskar listagyðjur í París

Íslensk hönnun var í hávegum höfð í sjóðheitu teiti í París á dögunum í tilefni af tískuvikunni þar. Þrír íslenskir listamenn komu þar saman að sýningunni „Reykjavík“ sem haldin var í Le Marais-hverfinu, sem er þekkt fyrir tísku, sjarma og töffara.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Missti hönd í mót­mælunum

Fimmtán ára drengur missti höndina þegar hann mótmælti fyrir utan framhaldsskóla í Frakklandi. Enn halda mótmælin áfram og fer umfang viðbragða lögreglu vaxandi.

Erlent
Fréttamynd

Unglingavinnan var tískupallurinn í París

„Þegar ég var tólf ára byrjaði ég að segja fólki að ég væri fyrirsæta þó að það væri ekkert til í því þá. Ég vissi bara að þetta væri það sem ég vildi gera,“ segir Alísa Helga Svansdóttir sem er í dag ein vinsælasta fyrirsæta sem Ísland hefur alið af sér.

Lífið
Fréttamynd

G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn

Leiðtogar G7-ríkjanna svokölluðu hafa samþykkt að hleypa hundrað milljónum tunna af hráolíu og olíuafurðum úr neyðarbirgðum sínum á markað. Fyrst verða tuttugu milljónir tunna settar á markaðinn og mun restin fylgja yfir næstu fjóra mánuði. Með þessu er vonast til að lækka megi verð á díselolíu og öðrum olíuafurðum, sem hafa hækkað mikið á undanförnum mánuðum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Boðaði ríkis­stjórn á fund vegna mót­mæla nem­enda

Sébastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, sá ástæðu til að boða ríkisstjórn sína til neyðarfundar í gær vegna mótmæla sem áttu upptök sín í skólum landsins en hann telur hættu á að þróist yfir í óeirðir og róstur á götum úti. Hefur forsætisráðherrann varað við því að mótmæli nemenda gætu magnast og leitt til frekari átaka.

Erlent
Fréttamynd

Hundruð ung­linga hand­teknir í Frakk­landi

Á fimmta hundrað manns, að stærstum hluta börn, voru handtekin í Frakklandi í gær eftir að nemendur á unglingastigi lokuðu skólum sínum víðs vegar um landið í mótmælaskyni við of stóra bekki, kennaraskort og langan skóladag.

Erlent
Fréttamynd

Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts

Íslendingar voru ekki einir um það að lítast ekki á blikuna þegar þeir sáu landsvæði sitt sveipað bandarískum fánalitum á korti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlum í byrjun mánaðar. Frakklandsforseti og Kanadamenn senda Bandaríkjaforseta væna pillu vegna kortsins.

Erlent
Fréttamynd

Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka

Finnar ætla að hefjast samstarf um öryggis- og varnarmál við yfirvöld í Frakklandi. Samningur þessi mun fela í sér að Finnland mun heyra undir kjarnorkuvopnavernd Frakklands og Finnar munu eiga í auknu varnarsamstarfi við Frakka og aðrar þjóðir sem að samstarfinu koma.

Erlent