Innlent

Starfsmaður Pizzunnar í Núpalind smitaður og tíu í sóttkví

Atli Ísleifsson skrifar
Framkvæmdastjóri Pizzunnar segir að farið hafi verið eftir öllum reglum og að búið sé að sótthreinsa útibúið.
Framkvæmdastjóri Pizzunnar segir að farið hafi verið eftir öllum reglum og að búið sé að sótthreinsa útibúið. vísir/vilhelm

Allir starfsmenn Pizzunnar í Núpalind í Kópavogi, um tíu talsins, eru komnir í sóttkví eftir að starfsmaður greindist með kórónuveiruna um helgina. Starfsmaðurinn er pítsusendill og fór með nokkrar pítsur til viðskiptavina.

Þetta staðfestir Hákon Atli Bjarkason, framkvæmdastjóri Pizzunnar, í samtali við Vísi. Hákon segir að hann hafi frétt af smitinu í gærkvöldi, en umræddur starfsmaður var að vinna á laugardagskvöld í tvo og hálfan tíma.

Hákon Atli segir að öllum upplýsingum hafi verið komið til smitrakningateymisins til að auðvelda þeirra vinnu við að hafa uppi á þeim sem líklegir eru að hafa getað smitast.

Hákon Atli segir að farið hafi verið eftir öllum reglum og að búið sé að sótthreinsa útibúið. Hann segir að starfsfólk úr öðrum útibúum Pizzunnar hafi verið kallað út til að manna útibúið við Núpalind á meðan starfsfólkið þar er í sóttkví.

Hann segir að starfsfólkið sem nú er í sóttkví vegna hins smitaða starfsmanns sé allt einkennalaust.

Alls eru 107 nú í sóttkví á landinu vegna Covid-19. Fyrr í dag var greint frá því að þrjátíu starfsmenn Hagkaups í Garðabæ hafi þurft að fara í sóttkví eftir að starfsmaður greindist smitaður.

Smitrakningarteymi almannavarna er nú önnum kafið við að ná utan um alla þá sem gætu hafa orðið útsettir fyrir smiti vegna þeirra tveggja sem greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar í gær.

Þegar Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður teymisins, var spurður hversu margir væru útsettir fyrir smiti vegna tilfella gærdagsins svaraði hann því til að erfitt væri að segja til um nákvæma tölu því hún gæti tekið breytingum í ljósi þess að rakningarvinnan væri enn í fullum gangi.

Hann sagðist þó sjá fram á að undir lok dags væru á annað hundrað manns komnir í sóttkví vegna tilfellanna tveggja.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×