Cecilía til Örebro: „Handviss um að hún muni spila með einu af bestu liðum Evrópu“ Sindri Sverrisson skrifar 19. mars 2021 16:00 Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Berglind Rós Ágústsdóttir í leik Fylkis og Breiðabliks síðasta sumar. Þær eru nú allar þrjár komnar í atvinnumennsku. vísir/bára Hin 17 ára gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í fótbolta, er farin út í atvinnumennsku. Hún er þegar mætt til Svíþjóðar og orðin leikmaður Örebro, rétt eins og fyrrverandi fyrirliði hennar hjá Fylki.
Cecilía hefur verið orðuð við enska félagið Everton en samkvæmt frétt Fótbolta.net mun hún skrifa undir samning við Everton þegar hún hefur náð 18 ára aldri. Þangað til megi segja að hún sé „að láni“ hjá Örebro. Í frétt á vef Örebro hrósar Jonas Nilsson, íþróttastjóri Örebro, happi yfir að hafa fengið Cecilíu en kveðst jafnframt „handviss um að hún muni spila með einu af bestu liðum Evrópu í framtíðinni“. Cecilía gerði samning til eins árs við Örebro. Hún er tilbúin í að spila sinn fyrsta leik fyrir liðið um helgina, gegn Sundsvall í sænska bikarnum. Cecilía fylgir á eftir Berglindi Rós Ágústsdóttur sem lék með henni hjá Fylki en samdi við Örebro í vetur. Cecilía hefur þegar spilað sinn fyrsta A-landsleik en það gerði hún í 1-0 sigri gegn Norður-Írlandi í mars í fyrra. Hún á að baki 30 leiki í efstu deild á Íslandi, fyrir Fylki, eftir að hafa byrjað meistaraflokksferil sinn með Aftureldingu/Fram.
Sænski boltinn Fylkir Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met Sjá meira