Helena Gallardo Roldán fyrsti starfsstöðvastjóri Hafró á Austurlandi Eiður Þór Árnason skrifar 22. mars 2021 14:24 Sýnatöku úr afla upp- og botnsjávarfisks og ýmsum rannsóknar- og vöktunarverkefnum verður stýrt frá Neskaupstað. Vísir/Vilhelm Helena Gallardo Roldán hefur verið ráðin starfsstöðvastjóri og sérfræðingur á nýrri starfsstöð Hafrannsóknastofnunar á Neskaupstað sem opnaði fyrr í mánuðinum.
Auk Helenu hefur verið gengið frá ráðningu Hrefnu Zoëga, sem mun starfa sem rannsóknarmaður við þessa fyrstu starfsstöð Hafrannsóknastofnunar á Austurlandi. Báðar munu þær sinna sýnatöku úr afla upp- og botnsjávarfisks sem og hinum ýmsum rannsóknar- og vöktunarverkefnum í landsfjórðungnum. Frá þessu er greint á vef stofnunarinnar en starfstöðin verður staðsett í Múlanum – samvinnuhúsi, nýjum skrifstofuklasa og miðstöð nýsköpunar. Helena Gallardo Roldán og Hrefna Zoëga eru fyrstu starfsmenn Hafrannsóknastofnunar á Austurlandi.Hafrannsóknastofnun/Svanhildur Egilsdóttir Helena Gallardo Roldán er með grunnháskólamenntun í sjávarlíffræði og mastersgráðu á sviði fiskeldi og fiskveiða með áherslu á sjávarauðlindir og sjálfbærni. Hún hefur meðal annars starfað við hafrannsóknir hjá Haffræðistofnun Spánar. Þá hefur hún gegnt störfum tengdri ferðaþjónustu á Íslandi í tæp tvö ár, meðal annars við hvalaskoðun. Hrefna Zoëga hefur menntun frá Fiskvinnsluskólanum á Dalvík, er með víðtæka starfsreynslu úr sjávariðnaði og hefur meðal annars unnið í fiskvinnslu, sem verkstjóri og gæðastjóri. Að auki hefur hún tekið þátt í að setja fiskvinnslufyrirtæki af stað frá grunni og verið háseti á skipi. Síðustu ár hefur Hrefna unnið í ferðageiranum og verið hótelstjóri.
Fjarðabyggð Sjávarútvegur Mest lesið „Svarið er einfaldlega: Svona höfum við alltaf gert þetta“ Atvinnulíf Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Viðskipti innlent MrBeast gerir tilboð í TikTok Viðskipti erlent Kaffi Kjós til sölu Viðskipti innlent Íslandsbanki og VÍS skrifa undir samstarfssamning Neytendur Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Viðskipti innlent Brotið á Jóhannesi en Birkir fer tómhentur frá Strassborg Viðskipti innlent „Oft velt því fyrir mér: Hvenær munu þessar sögusagnir hætta?“ Atvinnulíf Skóari skellir í lás á Grettisgötunni Viðskipti innlent „Ætla ekki að ljúga því að ég sé einhver ofurhress morguntýpa“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Kaffi Kjós til sölu Skóari skellir í lás á Grettisgötunni Brotið á Jóhannesi en Birkir fer tómhentur frá Strassborg Karen inn fyrir Þórarin Björn Leifsson horfir til Vestmannaeyja Yfirtakan hækkaði gengi krónunnar töluvert Afkoma Arion lengst yfir spám greinenda Þögul sem gröfin um auglýsinguna umdeildu Eftirlitið gefur lítið fyrir yfirlýsingu Styrkáss Erla Ósk ráðin forstöðumaður EMBA náms við HR Fjögur skip hefja leit að loðnu Segir seinkun Hvammsvirkjunar geta þýtt tugmilljarða tekjutap Svigrúm fyrir keppinauta „sem ástunda ekki jafnósvífna verðlagningu“ Hagnaðurinn dregst saman Hrönn stýrir Kríu Skoða að leita réttar síns vegna „óeðlilegra viðskiptahátta“ ríkisins Jónína tekur við af Elísabetu hjá BBA//Fjeldco Ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Ofar Indó sigurvegari Ánægjuvogarinnar Bein útsending: Mannamót markaðsstofa landshlutanna Undirrituðu samstarfssamning við Southwest Airlines Brynja nýr fjármálastjóri LIVE Íslenska ánægjuvogin kynnt á Grand Hóteli Elísabet Hanna til Bara tala Heildarafli síðasta árs 28 prósent minni en 2023 Hópuppsögn hjá Sidekick Health Endurgreiða raforkuframleiðendum þrjá milljarða Bætist í hóp eigenda Frumtak Ventures Sjá meira