„Sem betur fer hentu Jói og Siggi mér á miðjuna“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. mars 2021 15:30 Stefán Teitur Þórðarson lék sjö af níu leikjum Íslands í undankeppni EM U-21 árs liða. vísir/bára Stefán Teitur Þórðarson segir að það hafi ekki alveg verið í kortunum að hann myndi spila sem miðjumaður í lokakeppni EM þegar hann lék sem framherji með ÍA í næstefstu deild.
Eftir að hafa leikið í fremstu víglínu framan af ferlinum færðu þjálfarar ÍA, þeir Jóhannes Karl Guðjónsson og Sigurður Jónsson, Stefán Teit aftar og á miðjuna fyrir tveimur árum. Sú breyting gaf góða raun, bæði fyrir ÍA og ekki síst fyrir Stefán Teit sjálfan. „Nei, ég alveg sagt það að ég hafði ekki trú á því að ég myndi spila sem miðjumaður þegar ég var framherji með ÍA í Inkasso-deildinni,“ sagði Skagamaðurinn á fjölmiðlafundi í Györ í Ungverjalandi í dag. „En sem betur fer hentu Jói og Siggi mér á miðjuna og það var mjög gott,“ bætti Stefán Teitur við. Hann skoraði átta mörk í sautján leikjum með ÍA í Pepsi Max-deildinni í fyrra en gekk um haustið í raðir Silkeborg í Danmörku. Hann unir hag sínum vel þar og segist hafa bætt sig mikið. „Mér finnst ég hafa tekið mörg skref fram á við í öllu sem tengist mínum leik og vonandi heldur það áfram. Vonandi get ég tekið fleiri skref áfram á þessu móti,“ sagði Stefán Teitur. Silkeborg er í 2. sæti dönsku B-deildarinnar og er á leið í úrslitakeppni um sæti í úrvalsdeildinni. Stefán Teitur hefur leikið tólf deildarleiki með Silkeborg á tímabilinu, skoraði eitt mark og lagt upp tvö.
EM U21 í fótbolta 2021 Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira