Mitrovic hetja Serbíu og Kýpur með óvæntan sigur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. mars 2021 17:56 Tryggði Serbíu sigur í dag og er orðinn markahæsti leikmaður landsins frá upphafi. Srdjan Stevanovic/Getty Images Óvæntum úrslitum í undankeppni HM 2022 í knattspyrnu virðist hvergi nærri lokið. Kýpur vann 1-0 sigur á Slóveníu nú rétt í þessu og þá reyndist Aleksandar Mitrović hetja Serbíu í Aserbaísjan er gestirnir unnu 2-1 sigur.
Í H-riðli vann Kýpur óvæntan 1-0 sigur á Slóveníu þökk sé marki Ioannis Pittas undir lok fyrri hálfleiks. Reyndist það sigurmark leiksins og heimamenn eru nokkuð óvænt í 2. sæti riðilsins með fjögur stig að loknum þremur leikjum. Rússar er á toppnum með sex stig að loknum tveimur leikjum, Króatar því 3. með þrjú stig að loknum jafn mörgum leikjum en Slóvenía í 4. sæti með aðeins þrjú stig eftir að hafa leikið þrjá leiki. Í Aserbaísjan var það Aleksandar Mitrović sem sá til þess að Serbía var 1-0 yfir í hálfleik. Heimamenn fengu vítaspyrnu þegar tæp klukkustund var liðin og skoraði Ermin Makhmudov af öryggi úr spyrnunni og staðan orðin 1-1. Þannig var hún allt fram á 81. mínútu þegar Mitrović skoraði annað mark sitt og annað mark Serbíu með góðu skoti fyrir utan vítateig. Staðan orðin 2-1 og reyndust það lokatölur leiksins. Mitrović hefur nú skorað 41 mark í treyju Serbíu og er þar með orðinn markahæsti leikmaður í sögu landsins. Mitrovi = Serbia's all-time top scorer at just 26 years old #WCQ pic.twitter.com/mWUXsUD2EU— European Qualifiers (@EURO2020) March 30, 2021 Serbía er á toppi A-riðils með sjö stig að loknum þremur leikjum en þar á eftir kemur Portúgal með fjögur stig eftir tvo leiki. Aserar reka lestina án stiga.
Fótbolti HM 2022 í Katar Mest lesið Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Fótbolti Ten Hag verði ekki rekinn Enski boltinn „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Enski boltinn Simeone kennir Courtois um ólætin Fótbolti „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Enski boltinn Fleiri fréttir Spilar ekki í deildinni fyrr en í nóvember Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Landsliðsskórnir komnir á hilluna Ten Hag verði ekki rekinn Simeone kennir Courtois um ólætin Leikurinn ekki stöðvaður þó svo maður hafi dáið í stúkunni Áhorfandi fékk sex milljónir fyrir ótrúlegt skot Dagskráin í dag: Stúkan tæklar stóru málin og Guðrún gæti orðið meistari Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Stillti upp fartölvu til að mótmæla „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Tap hjá Sverri í Aþenuslagnum Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fylkir - KA 1-3 | KA kom Fylki í vonlitla stöðu Jafnt þegar Logi og Brynjar mættust Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Andri skoraði fyrir slaginn við Chelsea Albert ekki fyrstur til að vinna Empoli „Ætli svona 4-3 hefði ekki verið sanngjarnt“ Tap hjá Frey gegn liðinu sem vildi hann | Lið Sveindísar steinlá „Hún er þarna til að verja og hún gerir það vel“ Dagný fékk gult þegar Hamrarnir nældu í sitt fyrsta stig Uppgjörið: Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Uppgjörið og viðtöl: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu Uppgjörið: Vestri - HK 2-1 | Vestri úr fallsæti og með örlögin í eigin höndum Mikael Egill byrjaði þegar Rómverjar komu til baka Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Tottenham lék tíu United-menn grátt Sjá meira