Fyrstu fiskarnir komnir úr austurbakka Hólsár Karl Lúðvíksson skrifar 3. apríl 2021 10:01 Vorveiði við austurbakka Hólsár hefur ekki verið mikið stunduð en nú hefur nýr leigutaki tekið við svæðinu og það stendur til að koma fleirum að á þessu magnaða svæði.
Vorveiði við austurbakka Hólsár hefur ekki verið mikið stunduð en nú hefur nýr leigutaki tekið við svæðinu og það stendur til að koma fleirum að á þessu magnaða svæði. Austurbakka Hólsár þekkja laxveiðimenn eflaust vel því þarna fer allur lax í gegn á leið sinni í Eystri Rangá og hefur veiðin þarna oft verið ævintýralega góð eins og í fyrra. Það eru kannski færri sem vita að þetta er líka feykna sterkt sjóbirtingssvæði og vorveiðin þarna getur verið góð enda eru vænir birtingar þarna á svæðinu á þessum tíma. Jóhann Davíð Snorrason hjá Kolskegg, sem er nýji leigutakinn, tók í það minnsta einn vænan birting og missti tvo aðra strax á fyrsta degi. Veiðin er oftar en ekki mest við og í kringum bæinn Ármót á þessum tíma en það eru líka aðrir staðir sem geta gefið vel. Þar má til dæmis nefna Brúarhylinn og strengina þar fyrir ofan og neðan, hábakkann fyrir neðan veiðihús, Ártún og eins er fullt af flottum tökustöðum þar sem sjóbirtingur liggur alveg frá þar sem Rangárnar koma saman og niður í ós. Þetta er mjög skemmtilegt veiðisvæði sem er alveg óhætt að mæla með. Veiðihúsið er nýlega búið að fá flotta yfirhalningu og hefur líklega sjaldan litið jafn vel út.
Stangveiði Mest lesið Vatnsdalsá opnaði í morgun Veiði Verður að gæda við Rio Grande til vors Veiði 1.004 fiska vika í Veiðivötnum Veiði Lokatölur úr Veiðivötnum Veiði Ytri-Rangá yfir 3.000 laxa; tvær vaktir með 161 lax Veiði Meira af tölfræði í Eystri Rangá 2020 Veiði Nýr leigutaki tekur við Stóru Laxá Veiði Ný glær flotlína frá Airflo Veiði Veiði í einni lengstu á landsins að hefjast Veiði Síðasti séns í Þingvallavatni Veiði