Lífið

Enn án bragð- og lyktarskyns vegna Covid-19

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn smitaðist af Covid-19 fyrir fimm mánuðum síðan.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn smitaðist af Covid-19 fyrir fimm mánuðum síðan. Vísir/RAX

„Ég er bara nokkuð góður. Þessi hvíld sem ég fékk í fríinu hjálpaði mér mikið,“ segir Víðir Reynisson um Covid veikindin en hann er nýkominn aftur til starfa eftir smá frí.

Víðir greindist með Covid-19 þann 25. nóvember á síðasta ári og er enn að kljást við eftirköst sjúkdómsins.

„Ég finn að ég er fullur orku. Það koma dagar þar sem ég er þreyttur. Finnst ég hafa tekið miklum framförum.“

Víðir var í viðtali við fréttastofu að loknum upplýsingafundi Almannavarna fyrr í dag. Hann sagði þar að bragð- og lyktarskynið sem hann tapaði í veikindunum, væru ekki komin til baka.

RAX heimsótti Víði þegar hann var í sóttkví vegna veikindanna.Vísir/RAX

„En andlegi og líkamlegi þátturinn er góður núna. Þetta er svolítið eins og þegar menn missa önnur skynfæri. Þú nýtir aðra þætti. Ég horfi meira á matinn sem ég borða og skynja áferðina. Maður verður að þróa annað með sér þegar eitt bregst. Flestir hafa fengið þetta til baka eftir einhvern tíma. En það líður oft mjög langur tími.“

Víðir segir að hann sé þolinmóður þó að einkenni veikindanna séu ekki með öllu horfin.Vísir/RAX

Dæmi séu um að fólk sem greindist í mars í fyrra sé enn að kljást við skert bragð- og lyktarskyn.

„Þetta kemur bara þegar það kemur. Ég ætla ekki að láta þetta trufla mig.“

Tengdar fréttir

Fólk í heimasóttkví fær heimsóknir en ekki frá lögreglu

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að eftirlit með fólki sem kemur til landsins og fer í heimasóttkví verði aukið með tvennum hætti. Annars vegar skerpt á símtölum til fólks og þeim fjölgað. Hins vegar fær fólk í heimasóttkví heimsókn frá aðilum sem þó er ekki lögregla.

Upp­lýsinga­fundur vegna kórónu­veirufar­aldursins

Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar vegna kórónuveirufaraldursins kl. 11. Þríeykið snýr aftur; þjóðinni til upplýsingar verða Alma Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.

Martraðir, óráð og eftirköst Covid-19

„Það er eins og mannkynið hafi í fyrsta skiptið í sögunni sameinast, við höfum eignast sameiginlegan óvin,“ segir Jón Ársæll Þórðarson sem veiktist illa af Covid-19.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.