Dramatískur sigur í fyrsta leiknum eftir brottrekstur Mourinho Anton Ingi Leifsson skrifar 21. apríl 2021 18:57 Gareth Bale skoraði fyrra mark Tottenham. Hér sést hann ásamt Ryan Mason, tímabundnum stjóra Tottenham. Clive Rose/Getty Images Tottenham vann dramatískan 2-1 sigur á Southampton í kvöld en þetta var fyrsti leikur félagsins eftir að Jose Mourinho var rekinn. Jose Mourinho var rekinn í byrjun vikunnar og það var hinn 29 ára gamli Ryan Mason sem stýrði Tottenham í fyrsta skipti í dag. Hann mun stýra liðinu fram á sumar. Það var liðinn hálftími er gestirnir frá Southampton komust yfir. Eftir stoðsendingu James Ward-Prowse kom Danny Ings boltanum í netið og þeir leiddu 1-0 í hálfleik. Gareth Bale fékk tækifæri í byrjunarliðinu og hann þakkaði traustið með marki eftir klukkutímaleik. Stundarfjórðungi síðar virtust Tottenham vera komist yfir en rangstaða var dæmt á Heung-Min Son. Það var hins vegar Son sem skoraði sigurmarkið í vítaspyrnu á 90. mínútu eftir að Moussa Djenepo braut á Harry Winks. Lokatölur 2-1. Tottenham er í sjötta sætinu með 53 stig, tveimur stigum á eftir Chelsea, sem á leik til góða. Southampton er í fjórtánda sætinu með 36 stig. FT: Tottenham 2-1 SouthamptonSpurs get all three points in Ryan Mason's first game in charge after they were awarded a late penalty.📲 Reaction 👇 #bbcfootball #TOTSOU— BBC Sport (@BBCSport) April 21, 2021 Enski boltinn