Saga Ýrr segir sig frá máli Sölva Tryggvasonar Snorri Másson skrifar 10. maí 2021 11:23 Saga Ýrr Jónsdóttir kom fram í hlaðvarpi Sölva og ræddi ásakanir á hendur honum. Sölvi Tryggvason Saga Ýrr Jónsdóttir hefur sagt sig frá máli Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns, sem hefur verið kærður fyrir líkamsárás og kynferðisbrot. Lögmaðurinn segir sig frá málinu vegna hagsmunaárekstrar, sem hún segist hafa frétt fyrst af á fimmtudaginn. Hagsmunaáreksturinn lýtur að því að önnur kvennanna sem kærir Sölva er umbjóðandi Sögu í hópmálsókn sem hefur verið í rekstri fyrir dómstólum um nokkurra ára skeið. Sú hópmálsókn mun vera ótengd máli Sölva. Saga segist hafa verið í „góðum og miklum samskiptum sem lögmaður“ við þessa konu, sem nú er að kæra Sölva. Mál Sögu og konunnar eru enn í rekstri. Með framferði sínu segist Saga hafa farið út fyrir verksvið sitt sem lögmaður og komið sér í aðstæður sem hún hafi aldrei átt að vera í. Síðasta vika hafi verið mjög lærdómsrík. Eftir að hafa horft á hlaðvarpið þar sem hún kemur fram ásamt Sölva, segir Saga að hún hafi áttað sig á að hún hafi sært einstaklinga með orðum sínum. Hún biður þá einstaklinga afsökunar. „Með því er ég alls ekki að taka afstöðu til sakleysis eða sektar Sölva heldur einungis að taka ábyrgð á minni framgöngu,“ skrifar Saga. „Mér varð brugðið við þessar upplýsingar“ Í yfirlýsingu Sögu segir að henni hafi verið brugðið þegar henni var tilkynnt að ein þeirra sem kæri Sölva sé umbjóðandi hennar í öðru máli. „Ég viðurkenni fúslega að mér varð brugðið við þessar upplýsingar en við þá konu hef ég átt í góðum og miklum samskiptum sem lögmaður undir rekstri hópmálsóknarinnar. Vegna þessa augljósa hagsmunaáreksturs er mér ekki annað fært en að segja mig frá máli Sölva og held því áfram að vinna að hagsmunum umræddrar konu í hópmálsókninni í góðu samráði við hana. Sölva sjálfan hef ég látið vita af þessari ákvörðun minni og ég óska honum velfarnaðar í sínum verkefnum.“ Saga kom fram ásamt Sölva í umdeildum hlaðvarpsþætti, sem hefur vakið gríðarlega athygli. Þar voru ásakanir á hendur Sölva til umfjöllunar og hélt Sölvi fram sakleysi sínu. Sölvi og Saga ræddu þó ekki aðeins formlega hlið málsins heldur einnig um persónulega líðan Sölva og fleiri mál. Saga klifaði meðal annars á því í viðtalinu að Sölvi væri „góður strákur.“ Mál Sölva er í höndum lögreglu en Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður kvennanna hefur sagt við mbl.is að ekki hafi fleiri konur stigið fram og sakað Sölva um ofbeldi. Gera má ráð fyrir að senn verði tekin skýrsla af Sölva vegna málanna. Á meðal ummæla Sögu í þættinum eru þessi: „Mér finnst þú frábær fyrirmynd að leyfa þér að gráta og frábær fyrirmynd að sína það. Sem móðir stráks er ég rosalega ánægð með það. Ég vil að strákurinn minn viti að hann má gráta og hann má sýna tilfinningar. Lífið má vera erfitt og það má vera alls konar.“ „Þú veist hvaða mann þú hefur að gera. Þú veist hvað er rétt. Ef að einhver vill reyna að níða af þér skóinn, þá gerir hann það bara langt í burtu. Ekki láta það hafa áhrif á þig. Þú ert alltof flottur strákur til þess. En þegar þú labbar inn á kaffihús og þú ert að kaupa þér latte þá get ég sagt þér að það er enginn að hugsa út í þetta. Strákarnir eru að hugsa „djöfull væri ég til í að vera hann“ og stelpurnar eru eflaust skotnar í þér. Það er það sem er að gerast í raunveruleikanum.“ Tilkynning Sögu um afsögn sína frá málinu Á sunnudaginn fyrir viku síðan leitaði Sölvi Tryggvason til mín og ég tók að mér afmarkað mál fyrir hans hönd sem lögmaður. Á fimmtudag fékk ég svo símtal þar sem mér var tilkynnt að önnur kvennanna sem kærði Sölva á miðvikudagskvöld er einn umbjóðenda minna í hópmálsókn sem hefur verið í gangi í nokkur ár og er enn í rekstri fyrir dómstólum. Ég viðurkenni fúslega að mér varð brugðið við þessar upplýsingar en við þá konu hef ég átt í góðum og miklum samskiptum sem lögmaður undir rekstri hópmálsóknarinnar. Vegna þessa augljósa hagsmunaáreksturs er mér ekki annað fært en að segja mig frá máli Sölva og held því áfram að vinna að hagsmunum umræddrar konu í hópmálsókninni í góðu samráði við hana. Sölva sjálfan hef ég látið vita af þessari ákvörðun minni og ég óska honum velfarnaðar í sínum verkefnum. Svo lengi lærir sem lifir og hefur undanfarin vika verið mér mjög lærdómsrík. Ég hef áttað mig á að ég fór út fyrir verksvið mitt sem lögmaður, lét tilleiðast og kom mér í aðstæður sem ég geri mér núna grein fyrir að ég hefði aldrei átt að vera í. Eftir að hafa horft á tíðrætt podcast sem fór í loftið í síðustu viku er fátt annað í brjósti mér en að ég átta mig á að orð mín þar hafa sært einstaklinga og á því langar mig að biðja einlæglega afsökunar. Með því er ég alls ekki að taka afstöðu til sakleysis eða sektar Sölva heldur einungis að taka ábyrgð á minni framgöngu. Mál Sölva Tryggvasonar Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir „Mikil mistök“ að hafa snúist til varnar fyrir Sölva Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson segir að hann hafi gert mistök þegar hann brást til varnar Sölva Tryggvasyni fjölmiðlamanni, eftir að Sölvi hafði gefið það út á netinu að hann væri saklaus af ásökunum um ofbeldi. 9. maí 2021 10:32 Sölvi brotnar algerlega saman í eigin hlaðvarpsþætti um sögusagnirnar „Ég sendi frá mér þessa yfirlýsingu í gær, en mér fannst eins og ég yrði að tjá mig eitthvað meira, einfaldlega af því að mér líður bara enn þá ofboðslega illa.“ 4. maí 2021 20:12 Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Hagsmunaáreksturinn lýtur að því að önnur kvennanna sem kærir Sölva er umbjóðandi Sögu í hópmálsókn sem hefur verið í rekstri fyrir dómstólum um nokkurra ára skeið. Sú hópmálsókn mun vera ótengd máli Sölva. Saga segist hafa verið í „góðum og miklum samskiptum sem lögmaður“ við þessa konu, sem nú er að kæra Sölva. Mál Sögu og konunnar eru enn í rekstri. Með framferði sínu segist Saga hafa farið út fyrir verksvið sitt sem lögmaður og komið sér í aðstæður sem hún hafi aldrei átt að vera í. Síðasta vika hafi verið mjög lærdómsrík. Eftir að hafa horft á hlaðvarpið þar sem hún kemur fram ásamt Sölva, segir Saga að hún hafi áttað sig á að hún hafi sært einstaklinga með orðum sínum. Hún biður þá einstaklinga afsökunar. „Með því er ég alls ekki að taka afstöðu til sakleysis eða sektar Sölva heldur einungis að taka ábyrgð á minni framgöngu,“ skrifar Saga. „Mér varð brugðið við þessar upplýsingar“ Í yfirlýsingu Sögu segir að henni hafi verið brugðið þegar henni var tilkynnt að ein þeirra sem kæri Sölva sé umbjóðandi hennar í öðru máli. „Ég viðurkenni fúslega að mér varð brugðið við þessar upplýsingar en við þá konu hef ég átt í góðum og miklum samskiptum sem lögmaður undir rekstri hópmálsóknarinnar. Vegna þessa augljósa hagsmunaáreksturs er mér ekki annað fært en að segja mig frá máli Sölva og held því áfram að vinna að hagsmunum umræddrar konu í hópmálsókninni í góðu samráði við hana. Sölva sjálfan hef ég látið vita af þessari ákvörðun minni og ég óska honum velfarnaðar í sínum verkefnum.“ Saga kom fram ásamt Sölva í umdeildum hlaðvarpsþætti, sem hefur vakið gríðarlega athygli. Þar voru ásakanir á hendur Sölva til umfjöllunar og hélt Sölvi fram sakleysi sínu. Sölvi og Saga ræddu þó ekki aðeins formlega hlið málsins heldur einnig um persónulega líðan Sölva og fleiri mál. Saga klifaði meðal annars á því í viðtalinu að Sölvi væri „góður strákur.“ Mál Sölva er í höndum lögreglu en Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður kvennanna hefur sagt við mbl.is að ekki hafi fleiri konur stigið fram og sakað Sölva um ofbeldi. Gera má ráð fyrir að senn verði tekin skýrsla af Sölva vegna málanna. Á meðal ummæla Sögu í þættinum eru þessi: „Mér finnst þú frábær fyrirmynd að leyfa þér að gráta og frábær fyrirmynd að sína það. Sem móðir stráks er ég rosalega ánægð með það. Ég vil að strákurinn minn viti að hann má gráta og hann má sýna tilfinningar. Lífið má vera erfitt og það má vera alls konar.“ „Þú veist hvaða mann þú hefur að gera. Þú veist hvað er rétt. Ef að einhver vill reyna að níða af þér skóinn, þá gerir hann það bara langt í burtu. Ekki láta það hafa áhrif á þig. Þú ert alltof flottur strákur til þess. En þegar þú labbar inn á kaffihús og þú ert að kaupa þér latte þá get ég sagt þér að það er enginn að hugsa út í þetta. Strákarnir eru að hugsa „djöfull væri ég til í að vera hann“ og stelpurnar eru eflaust skotnar í þér. Það er það sem er að gerast í raunveruleikanum.“ Tilkynning Sögu um afsögn sína frá málinu Á sunnudaginn fyrir viku síðan leitaði Sölvi Tryggvason til mín og ég tók að mér afmarkað mál fyrir hans hönd sem lögmaður. Á fimmtudag fékk ég svo símtal þar sem mér var tilkynnt að önnur kvennanna sem kærði Sölva á miðvikudagskvöld er einn umbjóðenda minna í hópmálsókn sem hefur verið í gangi í nokkur ár og er enn í rekstri fyrir dómstólum. Ég viðurkenni fúslega að mér varð brugðið við þessar upplýsingar en við þá konu hef ég átt í góðum og miklum samskiptum sem lögmaður undir rekstri hópmálsóknarinnar. Vegna þessa augljósa hagsmunaáreksturs er mér ekki annað fært en að segja mig frá máli Sölva og held því áfram að vinna að hagsmunum umræddrar konu í hópmálsókninni í góðu samráði við hana. Sölva sjálfan hef ég látið vita af þessari ákvörðun minni og ég óska honum velfarnaðar í sínum verkefnum. Svo lengi lærir sem lifir og hefur undanfarin vika verið mér mjög lærdómsrík. Ég hef áttað mig á að ég fór út fyrir verksvið mitt sem lögmaður, lét tilleiðast og kom mér í aðstæður sem ég geri mér núna grein fyrir að ég hefði aldrei átt að vera í. Eftir að hafa horft á tíðrætt podcast sem fór í loftið í síðustu viku er fátt annað í brjósti mér en að ég átta mig á að orð mín þar hafa sært einstaklinga og á því langar mig að biðja einlæglega afsökunar. Með því er ég alls ekki að taka afstöðu til sakleysis eða sektar Sölva heldur einungis að taka ábyrgð á minni framgöngu.
Tilkynning Sögu um afsögn sína frá málinu Á sunnudaginn fyrir viku síðan leitaði Sölvi Tryggvason til mín og ég tók að mér afmarkað mál fyrir hans hönd sem lögmaður. Á fimmtudag fékk ég svo símtal þar sem mér var tilkynnt að önnur kvennanna sem kærði Sölva á miðvikudagskvöld er einn umbjóðenda minna í hópmálsókn sem hefur verið í gangi í nokkur ár og er enn í rekstri fyrir dómstólum. Ég viðurkenni fúslega að mér varð brugðið við þessar upplýsingar en við þá konu hef ég átt í góðum og miklum samskiptum sem lögmaður undir rekstri hópmálsóknarinnar. Vegna þessa augljósa hagsmunaáreksturs er mér ekki annað fært en að segja mig frá máli Sölva og held því áfram að vinna að hagsmunum umræddrar konu í hópmálsókninni í góðu samráði við hana. Sölva sjálfan hef ég látið vita af þessari ákvörðun minni og ég óska honum velfarnaðar í sínum verkefnum. Svo lengi lærir sem lifir og hefur undanfarin vika verið mér mjög lærdómsrík. Ég hef áttað mig á að ég fór út fyrir verksvið mitt sem lögmaður, lét tilleiðast og kom mér í aðstæður sem ég geri mér núna grein fyrir að ég hefði aldrei átt að vera í. Eftir að hafa horft á tíðrætt podcast sem fór í loftið í síðustu viku er fátt annað í brjósti mér en að ég átta mig á að orð mín þar hafa sært einstaklinga og á því langar mig að biðja einlæglega afsökunar. Með því er ég alls ekki að taka afstöðu til sakleysis eða sektar Sölva heldur einungis að taka ábyrgð á minni framgöngu.
Mál Sölva Tryggvasonar Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir „Mikil mistök“ að hafa snúist til varnar fyrir Sölva Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson segir að hann hafi gert mistök þegar hann brást til varnar Sölva Tryggvasyni fjölmiðlamanni, eftir að Sölvi hafði gefið það út á netinu að hann væri saklaus af ásökunum um ofbeldi. 9. maí 2021 10:32 Sölvi brotnar algerlega saman í eigin hlaðvarpsþætti um sögusagnirnar „Ég sendi frá mér þessa yfirlýsingu í gær, en mér fannst eins og ég yrði að tjá mig eitthvað meira, einfaldlega af því að mér líður bara enn þá ofboðslega illa.“ 4. maí 2021 20:12 Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
„Mikil mistök“ að hafa snúist til varnar fyrir Sölva Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson segir að hann hafi gert mistök þegar hann brást til varnar Sölva Tryggvasyni fjölmiðlamanni, eftir að Sölvi hafði gefið það út á netinu að hann væri saklaus af ásökunum um ofbeldi. 9. maí 2021 10:32
Sölvi brotnar algerlega saman í eigin hlaðvarpsþætti um sögusagnirnar „Ég sendi frá mér þessa yfirlýsingu í gær, en mér fannst eins og ég yrði að tjá mig eitthvað meira, einfaldlega af því að mér líður bara enn þá ofboðslega illa.“ 4. maí 2021 20:12