Spatchcock er aðferð sem gerir eldun á kjúkling jafnari og fljótlegri. Þá er hryggurinn klipptur úr og kjúklingurinn flattur út.
Hér er hægt að sjá klippu af því þegar Alfreð töfrar fram grillaðan kjúkling með hvítri Alabama BBQ-sósu og smæli með chillimæjó.
Spatchcock-kjúklingur
með hvítri Alabama BBQ-sósu og smælki með chillimæjói
- Kjúklingur
-
- Heill kjúklingur
- CKN-kryddblandan
- Ferskur kóríander til skrauts
- Vorlaukur til skrauts
- Smælki
- Smjör
-
- Hvít Alabama BBQ-sósa:
- 2 dl majónes
- ½ dl hvítvínsedik
- 2 tsk nýmalaður svartur pipar
- ½ tsk salt
- 1 tsk sykur
- Chillimæjó
-
- 200 g majónes
- 2 msk Sriracha-sósa eða eftir smekk
- Aðferð - Chillimæjó
- Blandið öllum hráefnunum saman í skál og hrærið vel. Smakkið til með Sriracha, salti og pipar.
- Aðferð - Spatchcock-kjúklingur
- Kyndið grillið í 180 gráður.
- Klippið hrygginn úr kjúklingnum. Snúið honum við og þrýstið á hann svo að hann fletjist út.
- Kryddið með CKN eða kjúklingakryddi,setjið á grillið á óbeinan hita og grillið þar til kjúklingurinn nær 72 gráðum í kjarnhita.
- Búið til hvítu Alabama-sósuna. Setjið majónes, hvítvínsedik, pipar, salt og sykur í skál og hrærið saman.
- Sjóðið smælki og steikið á pottjárnspönnu upp úr smjöri þar til kartöflurnar eru stökkar.
- Berið kjúklinginn fram skreytan með ferskum kóríander og hvítri Alabama-sósu. Skreytið smælkið með vorlauk og chillimæjói.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá nokkrar girnilegar uppskriftir úr fyrri þáttum en fyrir áhugasama er hægt að nálgasta alla fyrri þætti BBQ kóngsins á Stöð 2+.