Viktor Bjarki í tveggja leikja bann Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. júní 2021 23:30 Þjálfarateymi HK: Viktor Bjarki og Brynjar Björn Gunnarsson. HK Viktor Bjarki Arnarsson, aðstoðarþjálfari HK í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann. Var bannið staðfest á fundi aga- og úrskurðarnefndar Knattspyrnusambands Íslands í dag. HK vann sinn fyrsta sigur í Pepsi Max-deildinni á sunnudaginn var er liðið lagði Leikni Reykjavík 2-1 á heimavelli sínum í Kórnum. Brynjar Björn Gunnarsson var ósáttur með mark Leiknis sem kom á 69. mínútu leiksins en það var eflaust ekki ástæðan fyrir því að Viktor Bjarki, aðstoðarþjálfari liðsins, lét reka sig upp í stúku þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Ekki er ljóst fyrir hvað Ívar Orri Kristjánsson, dómari leiksins, sendi Viktor Bjarka upp í stúku en Viktor ku hafa klappað kaldhæðnislega fyrir Ívari er hann gekk í burtu og fyrir það fær hann auka leik í bann. Viktor Bjarki verður því í banni er HK heimsækir Keflavík í sannkölluðum sex stiga fallslag þann 13. júní sem og er liðið heimsækir Stjörnuna – í öðrum sex stiga fallslag – þann 20. júní næstkomandi. Hér má úrskurði frá fundi aganefndar KSÍ í dag.
HK vann sinn fyrsta sigur í Pepsi Max-deildinni á sunnudaginn var er liðið lagði Leikni Reykjavík 2-1 á heimavelli sínum í Kórnum. Brynjar Björn Gunnarsson var ósáttur með mark Leiknis sem kom á 69. mínútu leiksins en það var eflaust ekki ástæðan fyrir því að Viktor Bjarki, aðstoðarþjálfari liðsins, lét reka sig upp í stúku þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Ekki er ljóst fyrir hvað Ívar Orri Kristjánsson, dómari leiksins, sendi Viktor Bjarka upp í stúku en Viktor ku hafa klappað kaldhæðnislega fyrir Ívari er hann gekk í burtu og fyrir það fær hann auka leik í bann. Viktor Bjarki verður því í banni er HK heimsækir Keflavík í sannkölluðum sex stiga fallslag þann 13. júní sem og er liðið heimsækir Stjörnuna – í öðrum sex stiga fallslag – þann 20. júní næstkomandi. Hér má úrskurði frá fundi aganefndar KSÍ í dag. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla HK Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira