Lífið

Fagnaði sigri á gigtinni á toppi Hvannadalshnjúks

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Dagur B. Eggertsson fór á Hvannadalshnjúk um helgina ásamt góðum hópi.
Dagur B. Eggertsson fór á Hvannadalshnjúk um helgina ásamt góðum hópi. Facebook

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur gekk á topp Hvannadalshnjúks um helgina, hæsta tind Íslands. Dagur þjáist af gigt og þarf vikulega á lyfjagjöf að halda. Hann segir ólýsanlegt að hafa náð þessum áfanga eftir óvissuna vegna veikindanna síðustu ár. 

„Í júní fyrir þremur árum lagðist á mig gigt, svo kölluð fylgigigt. Hún kom einsog þruma úr heiðskíru lofti. Einsog sjálfsagt einhverjir muna var ég verulega slæmur lengi vel og þurfti að styðjast við staf allt fram til áramóta. Og ég er ennþá að sprauta mig vikulega með lyfjum. En þvílík undralyf. Um helgina sigraðist ég á sjálfum mér, gigtinni og (sjalfsköpuðu) hreyfingarleysi þessara ára með því að klífa Hvannadalshnjúk í frábærum hópi fólks. “

Kalt á toppnum

Hópurinn hafði sextán tíma glugga til þess að komast upp og niður aftur á milli votviðris, vinda og skúra. 

„Við óðum snjó í ökkla upp og miðja kálfa niður og hreppum alls konar verður. Ég ætla ekki að halda því fram að þetta hafi verið auðvelt. Eða að ég sé ekki með strengi og finni til hér og þar. Ég get jafnframt staðfest að það er kalt á toppnum.“

Leiðsögumenn leiðangursins voru þau Marta Kusinska og Brook Woodman hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og hrósar Dagur þeim fyrir fagmennskuna.

„En þetta var magnað og ég get ekki lýst því með orðum hversu óralangt tilfinningin að ná þessum áfanga var á við óvissuna og glímuna við gigtina undangengin ár. Ég ætla að því að tileinka þessa göngu öllum sem glíma við gigt, og þakka Ragnari Frey gigtlækninum mínum og öllum sem hafa komið að meðferðinni.“ 

Dagur birti nokkrar myndir úr ferðinni á Instagram síðu sinni og má sjá þær í færslunni hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Vill seinka skóla­deginum til að mæta þörfum ung­linga

Nýtt tilraunaverkefni mun fara af stað hjá Reykjavíkurborg í haust þar sem nokkrum grunnskólar munu seinka skóladeginum. Vonir eru um að verkefnið mun skila sér í bættri líðan, bættum námsárangri og aukinni einbeitingu hjá börnum og ungmennum.

Dagur mátti mæta í bólusetningu í morgun en ætlar að bíða

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og læknir, þáði ekki bólusetningu sem honum stóð til boða í morgun. Hann fékk sent boð á föstudaginn vegna læknisfræðimenntunar sinnar og átti pláss klukkan 10:10 í dag í fyrri Pfizer sprautuna.

Dagur fer í veikindaleyfi

Sýking tekið sig upp að nýju og borgarstjóri frá Borgarstjóri er í leyfi meðan hann nær sér af sýkingu. Hann greindist með alvarlegan gigtarsjúkdóm eftir að hafa fengið sömu sýkingu síðasta haust, en sú var alvarlegri. Hann ætlar ekki í langt veikindaleyfi og er vongóður um framhaldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.