Lík sex ára gamallar stúlku fannst í íþróttatösku og bundið við akkeri á þúsund metra dýpi nærri þeim stað sem leitarflokkar fundur mannslausan bát karlmannsins á reki. Réttarmeinafræðingar hafa staðfest að líkið sé af eldri systurinni, að sögn AP-fréttastofunnar.
Önnur íþróttataska fannst nærri hinni en sú var tóm. Leit stendur enn yfir að yngri stúlkunni og föðurnum.
Faðirinn heitir Tomás Gimeno en hann er grunaður um að standa að hvarfi dætra sinna, Oliviu sem er sex ára og Önnu sem er eins árs. Hann skilaði stúlkunum ekki til móður sinnar þegar honum bar að gera það í lok apríl, að sögn Reuters-fréttastofunnar.
Beatriz Zimmermann, móðir stúlknanna og fyrrverandi eiginkona Gimeno, hefur haldið því fram að hann hafi hótað því að hún fengi aldrei aftur að sjá dætur sínar.
Hvarf systranna hefur slegið marga óhugi á Spáni. Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, sendi samúðarkveðjur til móður stúlknanna og ástvina hennar á Twitter.
„Ég get ekki ímyndað mér sársauka móður Önnu litlu og Oliviu sem hurfu á Tenerife vegna þeirra hræðilegu frétta sem við vorum að fá,“ tísti Sánchez.
Kvenréttindasamtök hafa boðað til mótmæla um allt land í dag vegna vaxandi ofbeldis gegn konum sem hefur lengi verið viðvarandi vandamál á Spáni. Karlmenn hafa drepið átján konur á Spáni það sem af er ári samkvæmt jafnréttisráðuneyti landsins. Frá því að byrjað var að halda utan um slíka tölfræði árið 2013 hafa 1.096 konur verið drepnar. Ofbeldisfullir karlmenn hafa einnig notað börn til þess að koma höggi á núverandi eða fyrrverandi maka. Frá 2013 hafa 39 börn verið myrt af líffræðilegum feðrum sínum.