Bylting í bæjarsnattið. Citroën AMI rafsnatti Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 14. júní 2021 07:01 Citroën AMI rafsnatti. Brimborg kynnti á föstudag rafsnattann Citroën AMI sem er hugsaður til snatts innan borga og bæja og smellpassar við aðra ferðakosti. Citroën AMI er tveggja manna, fjórhjóla, rafdrifinn, yfirbyggður rafsnatti með 75 km rafmagnsdrægni og 45 km hámarkshraða.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Brimborg. Citroën er á mikill siglingu í rafbílavæðingu og fyrr á árinu kynnti Brimborg rafbílinn Citroën Ë-C4 sem algerlega hefur slegið í gegn hjá Íslendingum. Lipur rafsnatti með 75 km drægni á rafmagni Citroën AMI er krúttlegur, agnarsmár, rafsnatti, 2,41 m á lengd og 1,39 m á breidd. Hann er sérhannaður til borgaraksturs með hámarkshraða 45 km / klst., 75 km drægni á 100% hreinu rafmagni, 5,5 kWh drifrafhlöðu og 6 kW rafmótor og vegur aðeins 420 kg. Hann nær fullri hleðslu á þremur klukkustundum og ekki þarf sérstaka hleðslustöð heldur er innbyggða hleðslusnúran einfaldlega útdregin úr hurðarfalsi og stungið í samband við venjulegan tengil. Ótrúlega lítill beygjuradíus gerir honum kleift að smjúga um götur borga og bæja og bregða sér í sjaldgæf, agnarsmá, bílastæði. Citroën AMI rafsnattinn er yfirbyggður með miðstöð með stórum gluggum og panorama þakglugga sem skapar mikið útsýni. Sæti eru fyrir bílstjóra og einn farþega, þeir sitja hátt og eru vel varðir fyrir óblíðu íslensku veðri. Citroën AMI rafsnatti. 100% endurvinnanlegur og ódýr í notkun Allir íhlutir Citroën AMI rafsnattans eru 100% endurvinnanlegir og Li-Ion drifrafhlaðan er 85% endurvinnanleg. Yfirbygginginn er symmetrísk sem gerir það að verkum að sömu hlutir eru að framan og aftan og á vinstri og hægri hlið. Það einfaldar framleiðsluferlið, lækkar framleiðslukostnað og rekstrarkostnaður verður umtalsvert lægri auk þess sem einfaldleiki hönnunarinnar lækkar rekstrarkostnað enn frekar. Orkukostnaður er algerlega í lágmarki enda gengur rafsnattinn Citroën AMI fyrir ódýrri, íslenskri raforku og eyðir litlu sökum þess hversu léttur hann er. Þjónusta er aðeins á 2 ára eða 20.000 km fresti hvort sem á undan kemur og þá þarf helst að líta til þurrkublaða, hemlavökva, frjóagnasíu ásamt léttri almennri yfirferð. Ábyrgð á drifrafhlöðunni er 3 ár eða 40.000 km og ábyrgð bílsins í heild með þjónustusamningi er 3 ár óháð akstri. Citroën AMI rafsnatti í sambandi. Til kaups eða leigu Citroën AMI rafsnattinn verður í boði til kaups til almennra fyrirtækja og fyrirtækja sem sérhæfa sig í útleigu en einnig geta fyrirtæki eða einstaklingar valið að leigja. Hann hentar einstaklega vel að taka á leigu í margvíslegt snatt jafnvel niður í nokkrar mínútur, klukkustundir eða dag í senn eða í lengri leigu t.d. til nota á athafnasvæðum fyrirtækja eða til útkeyrslusnatts á afmörkuðum svæðum. Tilraunaverkefni á Íslandi og sendibílaútgáfa væntanleg Citroën AMI er tilraunaverkefni Brimborgar í samvinnu við Citroën í Frakklandi en samskonar verkefni er samtímis í gangi í fjölmörgum öðrum löndum í ljósi vaxandi vinsælda margvíslegra nýrra ferðamáta. Í verkefninu felst að kanna hvernig skráningu verður háttað þ.e. er um að ræða bíl eða létt bifhjól, hvernig rafsnattinn reynist við mismunandi aðstæður og við hvaða verkefni hann hentar best. Citroën hefur þegar kynnt til sögunnar sendibílaútgáfu af AMI þar sem flutningsrými er komið í stað farþegasætis og mun hann koma á markað síðar á árinu.
Vistvænir bílar Mest lesið Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Viðskipti innlent Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Viðskipti innlent Hildur ráðin forstjóri Advania Viðskipti innlent Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Viðskipti innlent Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Atvinnulíf Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Viðskipti innlent Strákar og stálp fá styrk Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst Viðskipti innlent Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Viðskipti innlent Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Auðveldara verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað E. coli í frönskum osti Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Morgunblaðið skammað fyrir að birta óvart lítið merki Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Stytta skammarkrókinn til muna Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Bobbingastaður í bobba „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Sjá meira