Ísraelsmenn varpa aftur sprengjum á Gasa Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 15. júní 2021 23:05 Frá sprengjuárásum Ísraelsmanna á Gasa-borg í maí. Ísraelsmenn gerðu loftárás á Gasa-svæðið í kvöld eftir að íkveikjusprengjur voru sendar með blöðrum frá svæðinu til Ísraels. BBC greinir frá þessu.
Þetta eru fyrstu alvarlegu átök sem hafa brotist út á svæðinu frá því að vopnahléssamningur var gerður þann 21. maí síðastliðinn. Átökin í síðasta mánuði stóðu yfir í ellefu daga og létust þá að minnsta kosti 256 Palestínumenn og 13 Ísraelsmenn. Í yfirlýsingu frá ísraelska varnarliðinu, IDF, segir að herþotur þess hafi sprengt herstöðvar Hamas-samtakanna í borginni Khan Yunis á Gasa-svæðinu. Ísraelar fullyrða að í herstöðinni hafi farið fram hryðjuverkastarfsemi og að IDF væri reiðubúið að hefja átök aftur af fullum krafti „í ljósi áframhaldandi hryðjuverka frá Gasa-svæðinu“. Erlendir fjölmiðlar sem eiga sér heimildarmenn innan Hamas-samtakanna segja að enginn hafi slasast í loftárásunum í kvöld. Ísraelsmenn segja þá að íkveikjusprengjurnar sem voru sendar frá Gasa-svæðinu með blöðrum hafi kveikt að minnsta kosti tuttugu elda á ökrum í suðurhluta landsins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Ísrael Palestína Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira