Sjáðu ótrúlegt mark Víðis af 80 metra færi Sindri Sverrisson skrifar 25. júní 2021 09:00 Leikmenn KFS fagna markinu á Hásteinsvelli sem endanlega tryggði þeim sæti í 16-liða úrslitunum. Stöð 2 Sport Víðir Þorvarðarson skoraði magnað mark af um 80 metra færi fyrir KFS þegar liðið sló út Víking Ólafsvík í Mjólkurbikarnum í fótbolta. KFS í Vestmannaeyjum verður eina liðið úr 3. deild sem verður í skálinni þegar dregið verður í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins á mánudaginn. Liðið sló Víking Ólafsvík út með 4-2 sigri í Eyjum. Markið hans Víðis má sjá hér að neðan. Klippa: Mjólkurbikarmörkin: Magnað mark Víðis Mörkin úr leiknum voru líkt og önnur mörk í 32-liða úrslitunum sýnd í Mjólkurbikarmörkunum á Stöð 2 Sport 4 í gærkvöld. Markið hans Víðis, sem er fyrrverandi fyrirliði ÍBV, stóð að sjálfsögðu upp úr en það skoraði hann í uppbótartíma. Víkingar voru þá komnir með allt sitt lið fram og þar með talinn markvörðinn. Henry Birgir Gunnarsson og Þorkell Máni Pétursson voru sammála um að markið gerði tilkall til Puskas-verðlaunanna, sem flottasta mark ársins í fótboltaheiminum, en Máni benti á að áður en markið yrði sent inn til FIFA væri kannski best að lækka í vindhljóðinu sem heyrðist. Vindurinn hjálpaði Víði vissulega með kraftinn í skotinu, en nákvæmnin þarf að vera ansi mikil til að skora yfir allan völlinn líkt og hann gerði. „Þetta er geggjað. Þetta er mark bikarkeppninnar. Það er komið núna,“ sagði Máni. „Það er ekki hægt að toppa þetta,“ tók Henry undir. Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Mjólkurbikarinn Vestmannaeyjar Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira
KFS í Vestmannaeyjum verður eina liðið úr 3. deild sem verður í skálinni þegar dregið verður í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins á mánudaginn. Liðið sló Víking Ólafsvík út með 4-2 sigri í Eyjum. Markið hans Víðis má sjá hér að neðan. Klippa: Mjólkurbikarmörkin: Magnað mark Víðis Mörkin úr leiknum voru líkt og önnur mörk í 32-liða úrslitunum sýnd í Mjólkurbikarmörkunum á Stöð 2 Sport 4 í gærkvöld. Markið hans Víðis, sem er fyrrverandi fyrirliði ÍBV, stóð að sjálfsögðu upp úr en það skoraði hann í uppbótartíma. Víkingar voru þá komnir með allt sitt lið fram og þar með talinn markvörðinn. Henry Birgir Gunnarsson og Þorkell Máni Pétursson voru sammála um að markið gerði tilkall til Puskas-verðlaunanna, sem flottasta mark ársins í fótboltaheiminum, en Máni benti á að áður en markið yrði sent inn til FIFA væri kannski best að lækka í vindhljóðinu sem heyrðist. Vindurinn hjálpaði Víði vissulega með kraftinn í skotinu, en nákvæmnin þarf að vera ansi mikil til að skora yfir allan völlinn líkt og hann gerði. „Þetta er geggjað. Þetta er mark bikarkeppninnar. Það er komið núna,“ sagði Máni. „Það er ekki hægt að toppa þetta,“ tók Henry undir. Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Mjólkurbikarinn er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Mjólkurbikarinn er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Mjólkurbikarinn Vestmannaeyjar Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Sjá meira