Lífið

Besti vinurinn er hrútur sem heldur að stundum að hann sé hestur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
visir-img
Foto: RAX/RAX

Á bænum Skyggnisholti í Flóanum, rétt austan við Selfoss, búa tveir einstakir vinir. Ragnar Axelsson hitti sex ára Stein Þorra Viktorsson og lambhrúturinn hans Páll Stefánsson. Hrúturinn virðist ýmist halda að hann sé hundur eða hross og hafa þeir leikið mikið saman síðustu þrjú árin.

Saga hrútsins Páls byrjaði frekar sorglega og vildi hann enginn fyrstu dagana.

„Kindin sem hann er undan drapst þannig að hann var í rauninni heimalingur, það var ekkert hægt að koma honum undir aðra kind, það var fullreynt,“ segir Ingólfur Arnarson móðurbróðir Steins Þorra í samtali við Vísi.

Steinn var um þriggja ára aldur þegar Páll Stefánsson kom í heiminn en hann er oftast kallaður Lambi. Samband þeirra varð sterkt strax og þeir hittust fyrst.

Steinn Þorri Viktorsson og lambið Páll Stefánsson, betur þekktur sem Lambi. Mynd úr einkasafni fjölskyldunnar

„Þeir urðu svona svakalega flottir vinir. Alltaf þegar hann fór út að hjóla á þríhjólinu sínu, og eiginlega bara hvert sem hann fór, þá fór Lambi alltaf með. Hann var eins og hundur,“ útskýrir Ingólfur. 

Þrjú ár eru liðin og geta Steinn Þorri og Lambi enn skemmt sér konunglega saman.

Steinn Þorri að leik með kindunum á bænum. Vísir/RAX

„Þeir eru ennþá svona. Lambi er með hinum rollunum núna en þegar Steinn er á svæðinu þá eru þeir saman.“

Steinn Þorri og Lambi voru að leika úti á túni ásamt dóttur Ingólfs, Ingu Lillý Ingólfsdóttur, þegar ljósmyndara bar að garði. Það vakti athygli RAX að Steinn Þorri skellti sér á bak á Lamba sínum og hljóp hann með hann um hagana.

Bestu vinir í þrjú ár.Vísir/RAX

„Ég veit ekki hvort að hann haldi að hann sé hestur núna, Steinn má fara á bak á honum og það er alltaf stuð á honum,“ segir Ingólfur.

Steinn Þorri, Lambi og Inga Lillý.Vísir/RAX

Hann segir að nafnið Páll Stefánsson hafi verið einhver einkahúmor fjölskyldunnar en flestir kalla hann þó alltaf Lamba.

Vísir/RAX
Vísir/RAX
Vísir/RAX
Vísir/RAX
Vísir/RAX

Þó að Lambi haldi stundum að hann sé einn af hestunum, er hann samt líka oft eins og einn af hundunum á bænum.

„Ef hann er í rolluhópnum þá er hann sá eini sem er hægt að nálgast eða kalla á, hann kemur bara eins og hundur,“ segir Ingólfur. 

Frændsystkinin Steinn Þorri og Inga Lillý eru ótrúlega góðir félagar, nánast eins og systkini. Vísir/RAX

Tengdar fréttir

Hálendið vaknar af vetrardvala

Fátt hefur minnt á sumar víðast hvar á landinu fyrri hluta júní. Kalt hefur verið víða og hafa bændur norðan heiða áhyggjur af fé á fjöllum í kuldakastinu.

Magnaðar myndir af nýja hrauninu í Nátt­haga

Það var mikið sjónarspil á gosstöðvunum á Reykjanesi um helgina þegar hraun rann yfir vestari varnargarðana við gosstöðarnar og út í Nátthaga. Björgunarsveitarmaður í Grindavík segir fátt annað fréttnæmt hafa átt sér stað um helgina en hann hvetur forvitna gesti til að vera vel búnir áður en þeir leggja af stað upp að eldgosinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.