Nokkrir látnir í hnífaárás í Þýskalandi Kjartan Kjartansson skrifar 25. júní 2021 20:28 Lögreglumenn standa vörð við borða sem var strengdur í kringum vettvanginn í miðborg Würzburg í dag. Vísir/EPA Að minnsta kosti þrír eru sagðir látnir og sex særðir eftir að karlmaður á þrítugsaldri gekk þar berserksgang með stóru eggvopni í borginni Würzburg í sunnanverðu Þýskalandi í dag. Árásarmaðurinn var handtekinn.
Breska ríkisútvarpið BBC segir að myndskeið sem voru birt á samfélagsmiðlum sýni vegfarendur og lögreglumenn yfirbuga árásarmanninn. Maðurinn sem var handtekinn sé 24 ára gamall Sómali. Ekkert bendi til þess að fleiri hafi verið að verki en hann. Fimm eru sagðir alvarlega særðir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Hún fullyrðir að lögreglumenn hafi stöðvað árásarmanninn með því að skjóta hann í lærið. Hann sé ekki lífshættulega sár. Fjölmiðlar á svæðinu fullyrða að einn þeirra látnu sé ungur drengur og annað foreldri hans. Árásarmaðurinn hefur búið í Würzburg frá 2015 en Joachim Herrmann, innanríkisráðherrra Bæjaralands, segir að yfirvöld hafi vitað af því að maðurinn ætti til að verða ofbeldishneigður. Hann hafi verið skikkaður í meðferð á geðdeild vegna þess á undanförnum dögum. Önnur hnífaárás var gerð í Würzburg fyrir fimm árum. Þá særði sautján ára gamall pakistanskur hælisleitandi fimm manns, þar af tvo alvarlega um borð í lest. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þýskaland Mest lesið Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Innlent Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Innlent Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Erlent Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Innlent Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Innlent Fleiri fréttir Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Grunaður um að verða mæðgum að bana Tóku mið af viðskiptahalla en ekki tollum „Kokkurinn“ í Bandidos látinn Draga sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum fyrir heimsókn Netanjahú Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Flugmaðurinn sem týndi herþotu tjáir sig Fjölga flugmóðurskipum og herþotum í Mið-Austurlöndum Sjá meira