Innlent

Svona var 185. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Alma Möller landlæknir mætir á upplýsingafund almannavarna í dag.
Alma Möller landlæknir mætir á upplýsingafund almannavarna í dag. Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar klukkan ellefu í dag, þriðjudaginn 27. júlí.

Á fundinum fara Kamilla S. Jósefsdóttir staðgengill sóttvarnalæknis, Alma D. Möller landlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn almannavarna yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi.

Þetta er 185. upplýsingafundurinn frá því faraldurinn hófst hér á landi.

Fréttamenn spyrja spurninga að því loknu. Fundurinn verður í beinni útsendingu hér á Vísi, í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi og verður textalýsing hér fyrir neðan.

Uppfært: Fundinum er lokið en hér að neðan má sjá upptöku af honum í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×