Brýnar aðgerðir blasa við Oddný G. Harðardóttir skrifar 30. júlí 2021 11:31 Kosningarnar 25. september verða mjög mikilvægar fyrir íslenskt samfélag, mikilvægari en oftast áður. Þær munu ráða miklu um hvernig líf okkar allra þróast næstu árin og áratugina. Þar mun ráðast hvaða leiðir verða farnar til að mæta stórum áskorunum sem við stöndum frammi fyrir sem samfélag og sem þjóð meðal þjóða. Þar stendur valið milli þess að sýn jafnaðarmanna verði höfð að leiðarljósi eða hvort markaðshyggja og íhaldssemi ráða för. Verður notast áfram við gömlu leiðirnar sem hafa nú þegar brugðist bæði almenningi og jörðinni eða veljur fólk nýrri og betri leiðir? Við þurfum að byggja upp eftir heimsfaraldur og takast um leið á við loftlagsvá af mannavöldum, breytta aldurssamsetningu þjóðarinnar og sjálfvirknivæðingu sem hefur áhrif á störf og starfsskilyrði. Með jafnaðarstefnunni náum við þeirri efnahagslegu og samfélagslegu endurnýjun sem við þurfum svo sárlega á að halda. Leiðarljósið í aðgerðum okkar verður að vera öflug heilbrigðis- og velferðarþjónusta fyrir alla, jafnrétti til náms og heilbrigður vinnumarkaður sem stendur vörð um réttindi launamanna ásamt efnahagsstjórn sem gerir þetta mögulegt. Það verður ævinlega að taka almannahagsmunir fram fyrir sérhagsmuni og þjóðin á að fá fullt verð fyrir auðlindir þjóðarinnar. Við megum aldrei þola ranglæti og spillingu. Uppbygging Í uppbyggingunni sem framundan er þarf að vinna gegn atvinnuleysinu kröftuglega af hugkvæmni og dirfsku, renna fleiri stoðum undir atvinnulífið, verja velferðina og mæta tekjufalli fólks sem missir vinnuna og veita ungu fólki tækifæri til að nýta menntun sína hér á landi. Miklu máli skiptir að við bregðumst markvisst við þeim aðstæðum sem nú eru uppi í heimsfaraldri, ekki bara vegna þess að það er mikilvægt fyrir kjör og heilsu fólks heldur er það líka mikilvægt fyrir efnahag landsins. Um þessar mundir sópast æ fleiri og verðmætari eignir á hendur fárra. Við því verður að bregðast. Aðgerðir okkar verða að vinna gegn ójöfnuði, skapa fleiri störf, fjárfesta í innviðum, hlúa að barnafjölskyldum og byggja upp eðlilegan húsnæðismarkað. Fjárfestingar í umönnun og velferð, svo sem öldrunarþjónustu, heilbrigðiskerfi og leikskólum, eru ekki síður ábatasamar fjárfestingar en t.d. í opinberum framkvæmdum eða í byggingariðnaði. Kjör eldra fólks og öryrkja Ójöfnuður vex ekki aðeins vegna atvinnuleysis og auðsöfnunar fárra heldur heldur einnig vegna þess að ellilífeyrir og örorkulífeyrir hækka ekki í takti við lægstu laun. Á undanförnum árum hefur orðið kjaragliðnun og henni verður að eyða með því að hækka elli- og örorkulífeyri. Í fyrsta skrefi ætti í það minnsta að hækka grunninn um krónutöluhækkanir lífskjarasamninganna. Draga þarf einnig verulega úr skerðingum í kerfinu sem halda fjölmennum hópum i fátæktargildru. Ungar fjölskyldur Því fer fjarri að barnafjölskyldur á Íslandi fái jafnmikinn og góðan stuðning og tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Þessu verður að breyta. Skerðingar barnabóta hefjast nú við lágmarkslaun og barnafólk með meðallaun fær engar barnabætur hér á landi. Barnabæturnar eru ekki fyrir þeirra börn, þó að fólkið velti fyrir sér hverri krónu og aldrei sé afgangur um mánaðamót sama hve margir yfirvinnutímar séu unnir. Um leið og foreldrarnir vinna meira til að geta veitt börnum sínum þokkalegt húsnæði, klæði, fæði og tómstundir fá börnin lítinn tíma með foreldrum sínum og streitan við að skutla og sækja inn á milli vinnutarna tekur sinn toll. Stefna um barnvænt samfélag og leiðir til að uppfylla barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, líkt og lögbundið er, þarf að vera að fullu fjármögnuð. Þar á meðal til að vinna á biðlistum eftir þjónustu við börn, hvort sem er vegna greiningar eða úrræða. Varnir gegn hvers kyns ofbeldi og vanrækslu barna verður að styrkja og stjórnvöld mega aldrei setja börn í hættulegar aðstæður hvort sem er innan lands eða utan. Húsnæðiskerfið Húsnæðisverð hækkar og of stór hluti launa fer í kostnað við að halda þaki yfir höfuðið. Það ástand ógnar bæði velferð og efnahag almennings. Stórefla þarf almenna íbúðakerfið og halda áfram að byggja upp óhagnaðardrifnn leigumarkað um allt land. Lög um almennar íbúðir voru samþykkt sumarið 2016. Meginmarkmiðið er aukið framboð leiguhúsnæðis og að húsnæðiskostnaður fólks verði í samræmi við greiðslugetu. Íbúðakerfið er tilraun til að endurreisa vísi að félagslega húsnæðiskerfinu sem var aflagt undir lok síðustu aldar. Jóhanna Sigurðardóttir fyrrum forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar flutti lengstu ræðu sem hefur verið flutt á Alþingi til að mótmæla niðurlagningu félagslega íbúðarkerfisins, 14. maí árið 1998. Með öflugu félagslegu húsnæðiskerfi og auknu framboði á óhagnaðardrifnum leigumarkaði vinnum við gegn húsnæðisvandanum. Loftlagsvá Vinnan gegn loftslagsvá af mannavöldum er stærsta sameiginlega verkefni mannkyns. Allir þurfa að leggja þar sitt af mörkum og framlög íslenska ríkisins þurfa að duga fyrir metnaðarfyllri markmiðum en núverandi stjórnvöld setja sér. Markaðsöflin munu ekki leysa loftslagsvandann upp á eigin spýtur en þau má hins vegar virkja í þessari baráttu þar sem á miklu ríður að finna snjallar lausnir og koma þeim hratt á markað. Hér þurfa líka að haldast í hendur aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og aðgerðir til að binda og farga kolefni. Til að Ísland geti dregið svo um munar úr losun gróðurhúsalofttegunda og náð settum markmiðum með grænni uppbyggingu þarf hið opinbera að taka stórt frumkvæði í formi loftslagsvænna fjárfestinga og vísa veginn fyrir einkageirann. En um leið má aldrei fórna jöfnuði. Grípa þarf til aðgerða til að aðstoða tekjulágt fólk við að taka þátt í nauðsynlegum orkuskiptum. Fjárfestingar í grænni nýsköpun og þróun og uppbygging innviða og flutnings- og dreifikerfa fyrir endurnýjanlega orku eru á meðal þeirra efnahagslegu örvunaraðgerða sem hafa margfeldisáhrif og eru því ákjósanlegar. Hér þurfum við öll að leggjast á eitt við stefnumörkun og framkvæmd ef árangur á að nást í baráttunni gegn loftlagsvá af mannavöldum; fólk í sínu daglega lífi, sveitarfélögin, samtök launamanna og fyrirtækja og stofnanir. Sjálfvirknivæðing Sjálfvirknivæðingin getur bæði verið mjög spennandi og stórhættuleg. Hún á eftir að létta okkur margvísleg störf og skapa ný en gæti líka orsakað enn meiri misskiptingu og samþjöppun auðs og valda en nú er, ef þess er ekki gætt að skipta arðinum af henni af skynsemi og réttlæti, í anda jafnaðarstefnunnar. Gæta þarf þess að kostir sjálfvirknivæðingar nýtist ekki bara eigendum fyrirtækja heldur einnig starfsmönnum og samfélaginu öllu. Ýmsar slæmar aukaverkanir hafa nú þegar komið fram á vinnumarkaði. Launafólki er ýtt í hlutastörf, ótrygga vinnu og svokallaða launaverktöku og fer því á mis við réttinda- og velferðarkerfi vinnumarkaðar sem verkalýðshreyfingin og jafnaðarmenn voru alla 20. öldina að byggja upp. Þessi verktaka er fremur unnin af ungu fólki og fólki af erlendum uppruna. Þetta hefur ekki aðeins slæm áhrif á afkomuöryggi heldur einnig á lífeyrisréttindi, atvinnuleysistryggingar, veikinda- og sjúkraréttindi og rétt til fæðingarorlofs. Vinna verður gegn þessari þróun sem ógnar heilbrigði vinnumarkaðarins líkt og kennitöluflakk, launaþjófnaður og önnur svik við launamenn. Brýn þörf er á atvinnustefnu og menntastefnu sem tekur mið af breytingunum sem blasa við og auðveldar fólki að takast á við þær. Þjóðin eldist Eldra fólki fer fjölgandi á næstu árum þegar fjölmennir árgangar komast á efri ár og heilsa fólks verður betri með lengra lífi. Það er sannarlega jákvætt en hækkandi hlutfall eldra fólks í samfélaginu kallar á breytingar. Um þessar mundir er sjöundi hver landsmaður 65 ára og eldri en árið 2050 verður fjórði hver landsmaður á þeim aldri. Því eru breytingar nauðsynlegar á þjónustu og ýmsum úrræðum sem nú er beitt í málefnum eldra fólks. Til lengri tíma mun þessi þróun leiða til aukinna útgjalda hins opinbera jafnvel þó að heilsa eldra fólks sé og verði betri en áður. Samhliða auknum útgjöldum hægir á fjölgun starfandi fólks og endurskoðun á skattkerfinu m.t.t. annarra samfélagsbreytinga því nauðsynleg. Fjölgun eldra fólks kallar á önnur búsetuúrræði og nýja sýn stjórnvalda á málaflokkinn. Þar ætti sjálfstæð búseta á eigin heimili til æviloka að vera höfuðmarkmið með aukinni fyrirgreiðslu og fjölbreyttum valkostum líkt og þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt til. Einstaklingsbundin þjónusta á eigin heimili þarf að vera möguleg og hrinda þarf í framkvæmd þróunarverkefnum í heilbrigðis- og velferðartækni. Nauðsynlegt er að endurskoða fjármögnun stofnanavistunar og greiðsluþátttöku og sjá til þess að fjárhagslegt sjálfræði og sjálfstæði einstaklinga liggi fyrir. Allar þessar breytingar eru óhjákvæmilegar. Það þarf kjark og áræði og skýra sýn jafnaðarmanna til að takast á við þær og vissu um að þær munu stuðla að betra lífi fyrir alla. Kjósum Samfylkinguna! Höfundur er þingflokksformaður og oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Alþingiskosningar 2021 Samfylkingin Oddný G. Harðardóttir Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson Skoðun Hataðu mig af því að ég er í Viðreisn, ekki af því að ég er hommi Oddgeir Georgsson Skoðun Þegar skoðanir drepa samtalið Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Leysum heimatilbúin vanda á húsnæðismarkaði Jóhanna Klara Stefánsdóttir Skoðun Við þurfum að tala sama Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Veðmál í fótbolta – aðgerðir áður en skaðinn verður Birgir Jóhannsson Skoðun Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson Skoðun Margföldun þjóðarverðmæta: Meira virði úr sömu orku Árni Sigurðsson Skoðun Snorri Másson er ekki vandinn – hann er viðvörun Helen Ólafsdóttir Skoðun Ofbeldi í skólum: Áskoranir og leiðir til lausna Soffía Ámundadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fyrirhugað böl við Bústaðaveg og Blesugróf Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Fjölbreytt námsmat Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Að þvælast fyrir atvinnurekstri - á þeim forsendum sem henta Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Margföldun þjóðarverðmæta: Meira virði úr sömu orku Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar skoðanir drepa samtalið Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Leysum heimatilbúin vanda á húsnæðismarkaði Jóhanna Klara Stefánsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum að tala sama Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Veðmál í fótbolta – aðgerðir áður en skaðinn verður Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Hataðu mig af því að ég er í Viðreisn, ekki af því að ég er hommi Oddgeir Georgsson skrifar Skoðun Símafrí á skólatíma Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Ömurlegur fyrri hálfleikur – en er enn von? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Vitund, virðing og von: Jafningjastuðningur í brennidepli Nína Eck skrifar Skoðun Hingað og ekki lengra – Um þögnina sem styður ofbeldi Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Ein saga af sextíu þúsund Halldór Ísak Ólafsson skrifar Skoðun Að láta mata sig er svo þægilegt Björn Ólafsson skrifar Skoðun Nýjar reglur um réttindi fólks í ráðningarsambandi Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Ofbeldi í skólum: Áskoranir og leiðir til lausna Soffía Ámundadóttir skrifar Skoðun Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson skrifar Skoðun Eplin í andlitshæð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Bataskólinn – fyrir þig? Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir skrifar Skoðun Boðsferð Landsvirkjunar Stefán Georgsson skrifar Skoðun Samstarf um loftslagsmál og grænar lausnir Sigurður Hannesson,Nótt Thorberg skrifar Skoðun Ástin er falleg Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð eru ekki andstæður heldur nauðsynleg umræðuefni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Grunnstoðir sveitarfélagsins efldar til muna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Laugarnestangi - til allrar framtíðar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Að vera séður og heyrður getur bjargað lífi – Gulur september minnir okkur á að hlúa að hjartanu Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur um atburðina á Gaza Egill Þ. Einarsson skrifar Sjá meira
Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson Skoðun
Skoðun Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson skrifar
Skoðun Sanna er rödd félagshyggju, réttlætis og jöfnuðar! Laufey Líndal Ólafsdóttir,Sara Stef. Hildardóttir skrifar
Skoðun Líknarmeðferð og dánaraðstoð eru ekki andstæður heldur nauðsynleg umræðuefni Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Að vera séður og heyrður getur bjargað lífi – Gulur september minnir okkur á að hlúa að hjartanu Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Ábyrg umfjöllun um sjálfsvíg – erum við öll ritstjórar? Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,Tómas Kristjánsson Skoðun