Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar 15. október 2026 10:16 Árið er 2026. Við höfum lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, aukna þekkingu á taugaþroska, áföllum og langvinnum veikindum og skýra áherslu á snemmtækan stuðning. Samt vakna áleitnar spurningar um hvers vegna foreldrar sem leita aðstoðar fyrir börn sín mæta stundum tortryggni fremur en samstarfi. Þetta er sérstaklega umhugsunarvert þegar þarfir barna eru flóknar, meðal annars vegna langvinnra veikinda, taugaþroskafrávika eða samspils heilsufarslegra og sálfélagslegra þátta. Foreldrar sem óska eftir aðlögun eða benda á ófullnægjandi stuðning geta upplifað að gagnrýnar spurningar þeirra séu túlkaðar sem samstarfserfiðleikar. Þarna birtist mótsögn. Kerfi sem eiga að draga úr álagi og tryggja velferð barna geta sjálf orðið uppspretta frekara álags þegar samvinna bregst. Það er ekki nóg að hafa vald til að taka ákvörðun um líf barns. Það þarf þekkingu til að réttlæta hana og faglega auðmýkt til að endurskoða hana. Hegðun barns er skilgreind áður en hún er skilin Barn sem sýnir mótstöðu verður mótþróafullt. Barn sem á erfitt með skólasókn verður að mætingarvanda. Barn sem veikist ítrekað verður að fjarvistatölfræði. Foreldri sem spyr gagnrýninna spurninga verður að samstarfsvanda. Þannig getur lýsing á aðstæðum breyst í skilgreiningu á einstaklingnum. Hegðun skýrir hins vegar ekki sjálf orsakir sínar. Mótstaða getur verið tjáning kvíða, forðun tengst áfallastreitu og erfið skólasókn átt rætur í heilsufari, taugaþroska eða skólaumhverfi. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt tengsl milli erfiðrar reynslu í æsku, breytinga á streitustjórnun líkamans og aukinnar áhættu á tilteknum heilsufarsvandamálum. Þótt slíkt sanni ekki orsakasamband í einstökum tilvikum undirstrikar það mikilvægi heildstæðs mats. Þegar stofnanir einblína á einkenni án þess að kanna mögulegar skýringar geta þær brugðist við röngum vanda. Skólinn verður hluti af vandanum Ábyrgð skóla nær lengra en til kennslu og mætingarskráningar. Skólinn mótar öryggi, líðan og þroska barna og ber því að skoða hvort námsumhverfið og stuðningurinn mæti þörfum þeirra. Þegar athyglin færist frá eigin starfsháttum skólans að ætluðum annmörkum barns eða foreldris getur lausnaleit vikið fyrir ábyrgðarfærslu. Þá verður umræðan um hegðun, fjarvistir eða samstarfsvilja fremur en hvort viðeigandi aðlögun hafi verið tryggð. Sérstök hætta skapast þegar óstaðfestar túlkanir rata í greinargerðir og fylgja barninu milli stofnana. Endurtekin fullyrðing verður ekki staðreynd við það eitt að fleiri skrá hana. Tilkynning til barnaverndar getur verið lögbundin og nauðsynleg. En það er grundvallarmunur á rökstuddum áhyggjum af velferð barns og ágreiningi um þjónustu. Tilkynning leysir skólann heldur ekki undan eigin stuðningsskyldum. Tilkynning til annarrar stofnunar er ekki staðgengill lausnaleitar innan skólans. Þekking foreldra verður að tortryggni Foreldrar þekkja best mynstur í líðan og hegðun barna sinna sem sjást ekki í afmörkuðum samskiptum við stofnanir. Sú þekking er ekki óskeikul, en hún er heldur ekki ómarktæk. Þegar trúverðugleiki foreldra er dreginn í efa vegna fyrirfram mótaðra hugmynda getur verið um þekkingarlegt ranglæti að ræða, í skilningi heimspekingsins Miröndu Fricker. Foreldri sem samþykkir niðurstöðu getur verið talið samstarfsfúst, á meðan gagnrýnar spurningar annars foreldris eru túlkaðar sem samstarfserfiðleikar. Þá ræður staða þess sem talar meira en innihald þess sem sagt er. Fagmennska felst ekki í því að hafa alltaf rétt fyrir sér, heldur einnig í því að geta viðurkennt þegar eigin þekking nægir ekki. Þegar ábyrgðin hverfur á milli kerfa Í þjónustu við börn er mikið rætt um samþættingu og snemmtækan stuðning. En samstarf felst ekki eingöngu í því að vísa málum áfram. Skóli vísar til heilbrigðiskerfis, heilbrigðiskerfið til skólans og félagsþjónustan bíður eftir mati. Foreldrið leitar úrræða. Á meðan bíður barnið. Fundir hafa verið haldnir, tilkynningar sendar og verklagi fylgt. En hvað hefur breyst fyrir barnið? Hefur stuðningur verið tryggður? Hefur heilsufar þess verið tekið til greina? Hver ber ábyrgð á eftirfylgninni? Það er hægt að ljúka stjórnsýslulegu ferli án þess að leysa nokkurn vanda. Réttindi barna krefjast meira en góðs ásetnings Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður á um að það sem barni er fyrir bestu skuli vera grundvallarsjónarmið við ákvarðanir sem það varða. Börn eiga jafnframt rétt á að tjá skoðanir sínar og að tekið sé réttmætt tillit til þeirra. En það nægir ekki að vísa til hagsmuna barns. Það þarf að sýna hvernig þeir voru metnir, hvaða upplýsingar lágu fyrir og hvort leitað hafi verið viðeigandi sérfræðiþekkingar. Farsæld barna verður ekki tryggð með lagasetningu einni saman. Hún verður að birtast í vinnubrögðum, samvinnu og raunverulegum stuðningi. Afdrifarík ákvörðun verður ekki rétt einungis vegna þess að hún var tekin af réttum aðila, né barnmiðuð vegna þess að stofnunin hefur það hlutverk að gæta hagsmuna barna. Því meiri völd sem stofnanir hafa yfir lífi barna, þeim mun ríkari er skylda þeirra til að þekkja mörk eigin þekkingar og axla ábyrgð á afleiðingum ákvarðana sinna. Börn eiga ekki að þurfa að gjalda fyrir það sem kerfin vissu ekki, spurðu ekki um eða kusu að hlusta ekki á. Höfundur er MA nemi i félagsráðgjöf til starfsréttinda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun