Borga tæpar 50 milljónir punda fyrir varnarmanninn Valur Páll Eiríksson skrifar 6. ágúst 2021 22:31 Cristian Romero skrifaði undir hjá Tottenham í dag. Twitter/Tottenham Argentínumaðurinn Cristian Romero skrifaði í dag undir hjá enska knattspyrnuliðinu Tottenham um að leika með félaginu næstu árin, en lengd samnings hans var ekki gefin upp. Romero er næst dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Tottenham þurfti að styrkja vörn sína eftir brottför Belgans Toby Alderweireld til Katar og hefur Romero verið orðaður við félagið í allt sumar. Gengið var frá kaupunum í dag og greinir breska ríkisútvarpið, BBC, frá því að félagið hafi borgað Atalanta 47 milljónir punda fyrir Argentínumanninn. Hann er því næst dýrasti leikmaður í sögu félagsins, á eftir franska miðjumanninum Tanguy Ndombele sem var keyptur frá Lyon á tæpar 54 milljónir sumarið 2019. We are delighted to announce the signing of @CutiRomero2 from Atalanta. Welcome to Spurs, Cuti! — Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) August 6, 2021 Romero er annar leikmaðurinn sem Tottenham fær frá Atalanta í sumar, á eftir markverðinum Pierluigi Gollini, sem kom á láni frá ítalska félaginu. Þá kom kantmaðurinn ungi Bryan Gil einnig frá Sevilla. Romero er 23 ára gamall og átti glimrandi tímabil í miðri vörn Atalanta sem lenti í þriðja sæti ítölsku A-deildarinnar á síðustu leiktíð. Hann vann sér inn sæti í landsliði Argentínu og var í lykilhlutverki er liðið fagnaði sigri í Suður-Ameríkukeppninni í sumar. Atalanta hefur þegar fengið Tyrkjann Merih Demiral frá Juventus til að fylla skarð Romero hjá félaginu.
Enski boltinn Mest lesið Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Enski boltinn Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Sport Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Fótbolti Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Enski boltinn Saga Elvars er ótrúleg Sport Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Fótbolti Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Íslenski boltinn Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Handbolti Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Enski boltinn Fleiri fréttir Meinað að selja miða á mikilvægan útileik gegn Liverpool Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Greiða skaðabætur vegna fjarveru Messi Myndband af Rodrygo að nudda hné Ronaldo fær nýja þýðingu Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Toppbaráttan: Árlegi City-skriðþunginn og brúðarmærin sem vill verða brúður Gleði og sorg í Bítlaborginni í gærkvöldi: Sjáðu mörkin Liverpool setti afar svekkjandi met Gullit er hættur að horfa á fótbolta Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Börsungar úr leik þrátt fyrir öruggan sigur í kvöld Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Everton tengir saman sigra og Sunderland hafði betur gegn Leeds United Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Beta byrjar undankeppni HM á sigri gegn Ísrael Uppgjörið: Spánn - Ísland 3-0 | Spænska liðið sýndi mátt sinn og megin á köflum England hitaði upp fyrir leik gegn Íslandi með stórsigri Stórir íþróttaviðburðir í hættu vegna átaka í Mið-Austurlöndum Tímabilinu lokið og HM úr sögunni hjá Rodrygo Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Grímuklæddir áhorfendur ruddust inn á völlinn Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Rekinn eftir 8-0 sigur Sjá meira