Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2026 13:32 Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins 2002, sést hér á auglýsingunni frægu fyrir fyrsta og eina sigurleik Íslands á Spáni. timarit.is Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir í kvöld heimsmeisturum Spánar í fyrsta leik sínum í undankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta 2027.
Mótherjinn er gríðarlega sterkur og íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aðeins einu sinni náð að vinna Spán í A-landsleik frá upphafi. Sá leikur fór fram á Laugardalsvellinum 30. maí 2002 eða fyrir næstum því 24 árum síðan. Fyrir leikinn fyrir næstum því aldarfjórðungi síðan komu íslensku stelpurnar fram í heilsíðuauglýsingu þar sem mátti sjá þær klæddar í spænska nautabanabúninga. Það mátti líka sjá í bert hold hjá stelpunum eins og hjá fyrirliðanum Ásthildi Helgadóttur sem stóð fremst á myndinni, ber að ofan og með bolta fyrir framan sig. Stelpurnar höfðu áður vakið mikla athygli fyrir að koma fram á nærfötunum í auglýsingu fyrir heimaleik á móti Ítalíu haustið áður. Sá leikur vannst en nokkrum dögum síðar steinlágu stelpurnar 6-1 á móti Spáni. Nautabana-auglýsingin fræga sem birtist fyrir leikinn.Timarit.is Þær buðu aftur á móti upp á allt aðra og miklu betri frammistöðu í nautabanaleiknum svokallaða enda unnu þær spænska liðið sannfærandi 3-0. Síðan hefur Ísland ekki unnið Spán aftur og verkefnið hefur líklega aldrei verið erfiðara en í kvöld á móti ríkjandi heimsmeisturum á útivelli. Þessir leikir fyrir rúmum tveimur áratugum voru byrjunin á uppkomu íslenska liðsins en sex árum síðar komust þær á sitt fyrsta stórmót. Tvö fyrstu mörkin í sigurleiknum á Spáni voru skráð sem sjálfsmörk af spænska dómaranum en ættu með réttu að hafa verið skráð á Ásthildi Helgadóttur og Margréti Ólafsdóttur. Ásthildur fékk þó skráð þriðja markið þegar hún skallaði boltann í netið og innsiglaði sigurinn. Búinn að vera stórkostlegur dagur „Ég held að ég sé ofar skýjum núna,“ sagði landsliðsþjálfarinn Jörundur Áki Sveinsson við undirritaðan eftir leikinn. „Þetta er búinn að vera stórkostlegur dagur, aðallega vegna þess að okkur tókst að vinna þennan leik en einnig með þessari ótrúlegu umgjörð sem var í kringum hann. Það var frábær stemning á pöllunum en það er einnig frábær stemning í liðinu og ég hef aldrei upplifað svona góðan liðsanda hjá neinum hóp sem ég hef þjálfað,“ sagði Jörundur en leikurinn setti á sínum tíma met í fjölda áhorfenda á kvennalandsleik. Auðvitað var nautabanaauglýsingin mikið í umræðunni í kringum þennan leik. Auglýsingagerðin styrkti liðsandann „Þessi auglýsingagerð fyrir leikina er að styrkja liðsandann. Þær standa mikið í þessu sjálfar með hjálp góðra aðila og það er síðan frábært að uppskera það síðan með því að fá allt þetta fólk á völlinn,“ sagði Jörundur. Liðið sem hafði tapað með fimm mörkum ári áður vann nú sama lið með þremur mörkum tæpu ári síðar. „Við vissum að þessi tapleikur úti á Spáni í fyrra var slys og við ætluðum að sanna það, ekki bara fyrir okkur heldur fyrir öllum, og gerðum það með mjög sannfærandi hætti,“ sagði Jörundur. Vísir mun fylgjast með gangi mála í leiknum í dag sem hefst klukkan 18.00 að íslenskum tíma.
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sadio Mané hættur í landsliðinu en vill vera í kringum liðið áfram Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Sjá meira