Innlent

Sólveig Anna býður sig fram til Alþingis fyrir sósíalista

Árni Sæberg skrifar
Efstu sjö á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík norður
Efstu sjö á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík norður Sósíalistaflokkurinn

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skipar fjórða sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík norður. Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar flokksins er oddviti.

Í öðru sæti er Laufey Líndal Ólafsdóttir, stjórnmálafræðingur og grasrótaraktivisti. Í þriðja sæti er Atli Gíslason, tölvunarfræðingur og formaður ungra sósíalista.

„Eins og sést á lista flokksins í Reykjavík er Sósíalistaflokkurinn breiður flokkur sem endurspeglar vel almenning,“ segir Gunnar Smári. „Það er ljúfur heiður að fá að leiða þessa fylkingu baráttufólks. Þarna er fólk sem hefur þegar sett mark sitt á umræðuna, hefur í raun leitt samfélagsumræðuna undanfarin ár, en líka fólk sem mun verða áberandi á næstu vikum, mánuðum og árum, jafnvel áratugum. Listinn ber með sér að það hreyfing að verða til.“

„Ég trúi því að efnahagslegt réttlæti sé það mikilvægasta sem við berjumst fyrir,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, sem er í fjórða sæti listans. Í tilkynningu flokksins segir að hún sé menntuð í skóla lífsins og að hún hafi frá árinu 2008 tekið þátt í baráttunni fyrir efnahagslegu réttlæti. Hún sé sósíalískur femínisti og and-heimsvaldasinni. Hún viti að raunverulegur jöfnuður sé lykillinn að mannsæmandi framtíð.

Listi Sósíalistaflokks Íslands í Reykjavíkurkjördæmi norður í heild sinni:

  1. Gunnar Smári Egilsson, atvinnulaus blaðamaður 
  2. Laufey Líndal Ólafsdóttir, námsmaður í hléi
  3. Atli Gíslason, tölvunarfræðingur 
  4. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
  5. Oddný Eir Ævarsdóttir, rithöfundur 
  6. Bogi Reynisson, tæknimaður
  7. Kristbjörg Eva Andersen Ramos, námsmaður 
  8. Ævar Þór Magnússon, verkstjóri
  9. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, öryrki 
  10. Guttormur Þorsteinsson, bókavörður og formaður Samtaka hernaðarandstæðinga
  11. Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi 
  12. Atli Antonsson, doktorsnemi
  13. Ævar Uggason, bóksali 
  14. Jóna Guðbjörg Torfadóttir, kennari
  15. Bjarki Steinn Bragason, skólaliði 
  16. Nancy Coumba Koné, danskennari
  17. Jökull Sólberg Auðunsson, ráðgjafi 
  18. Birgitta Jónsdóttir, þingskáld
  19. Sigurður Gunnarsson, ljósmyndari
  20.  Þorvarður Bergmann Kjartansson, tölvunarfræðingur
  21. Ísabella Lena Borgarsdóttir, námsmaður María Kristjánsdóttir, leikstjóri



Fleiri fréttir

Sjá meira


×