Veirunni sama hvað þú skrifar margar tilfinningar í dagbók Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 11. ágúst 2021 10:36 Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur og einkaþjálfari, segir kórónuveiruna ekki spyrja um hreysti né heilsu. Vísir/Vilhelm Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli sálfræðingur og einkaþjálfari, segir að kórónuveiran spyrji ekki um hreysti né heilsu. Ragga sem er þekkt fyrir heilsusamlegt líferni, smitaðist sjálf af veirunni í apríl á þessu ári. „
Það fer enginn grafgötur með að Naglinn er heilsumelur per exelans og hugsar um hreyfingu, mataræði, andlega heilsu eins og sjáaldur auga síns og hefur nöldrað um dásemdir heilsulífsins á lendum internetsins síðan 2005,“ skrifar Ragga í færslu á Facebook-síðu sinni. Í færslunni segir Ragga frá því að hún hafi stundað líkamsrækt frá árinu 1998 og að hún innbyrði nánast eingöngu óunninn mat. Þá kveðst hún fasta í 12-14 tíma og drekka minnst þrjá lítra af vatni á dag. D-vítamín, C-vítamín, fjölvítamín, fiskiolía og göngutúrar eru einnig hluti af daglegri rútínu Röggu og segist hún sofa í 8-9 tíma á hverri nóttu. „Naglinn verður seint kölluð kyrrsetumanneskja og hjólar og labbar á milli staða hér í Kaupmannahöfn og tekur reglulega öndunaræfingar. Naglinn reynir að vera trú sjálfri sér og gríðarlega félagslynd með stóran vinahóp af jákvæðu fólki í kringum sig. Naglinn er með ónæmiskerfi á við Kínamúrinn og hristir af sér pestir og kvef eins og teflon panna.“ Það er því óhætt að segja að Ragga hugi afar vel að öllum hliðum heilsunar og hafi gert í mörg ár. Þrátt fyrir það smitaðist hún af kórónuveirunni í apríl á þessu ári. „Rónan spyr ekki um stétt né stöðu. Aldur né útlit. Hreysti né heilsu. Núvitund eða Crossfit. ALLIR geta smitast af COVID.... alveg sama hvað þeir gúlla mikið af bætiefnum, sofa mikið eða skrifa margar tilfinningar í dagbók.“ Ragga segir að þrátt fyrir að hafa smitast af veirunni, hafi hún einnig látið bólusetja sig. „Því Naglinn vill vernda náungann. Því við erum öll í þessari baráttu saman. Því við berum öll ábyrgð,“ skrifar Ragga í lok færslunnar. Athafnamaðurinn og áhrifavaldurinn, Nökkvi Fjalar Orrason greindi frá því að hann treysti á heilbrigt líferni og öflugt ónæmiskerfi sem vörn gegn kórónuveirunni í stað bólusetningar. Óhætt er að segja að ákvörðun Nökkva hafi verið kveikja að mikilli umræðu. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sagði í þættinum Pallborðið á Vísi, að honum þætti Nökkvi hafa talað óvarlega. Líkamsrækt, dagbókarskrif og köld böð myndu ekki koma í veg fyrir smit.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Kári segir böðin og ræktina ekki það sem muni bjarga Nökkva Fjalari Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur ekki að líkamsrækt, dagbókarskrif og köld böð geti minnkað líkurnar á því að smitast af kórónuveirunni. 9. ágúst 2021 17:32 Heilbrigt líferni og öflugt ónæmiskerfi í stað bólusetningar Nökkvi Fjalar Orrason segist ekki vera á móti bólusetningum. Hann ætli þó í það minnsta í bili að treysta á að heilbrigt líferni og öflugt ónæmiskerfi geti verið ein öflugasta vörnin gegn Covid-19. 7. ágúst 2021 14:15 Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira
Kári segir böðin og ræktina ekki það sem muni bjarga Nökkva Fjalari Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur ekki að líkamsrækt, dagbókarskrif og köld böð geti minnkað líkurnar á því að smitast af kórónuveirunni. 9. ágúst 2021 17:32
Heilbrigt líferni og öflugt ónæmiskerfi í stað bólusetningar Nökkvi Fjalar Orrason segist ekki vera á móti bólusetningum. Hann ætli þó í það minnsta í bili að treysta á að heilbrigt líferni og öflugt ónæmiskerfi geti verið ein öflugasta vörnin gegn Covid-19. 7. ágúst 2021 14:15