Lífið

Stjörnulífið: Brúðkaup, veiði og ævintýri í útlöndum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga. Samsett/Instagram

Íslendingar eru á faraldsfæti þrátt fyrir heimsfaraldurinn og virðist sem margir séu að njóta lífsins á heitari slóðum þessa dagana. Ástin lá í loftinu þessa vikuna og var mikið um brúðkaupsveislur um helgina.

Bubbi Morthens er kominn með nýtt flúr og listamaðurinn á bak við það er Aþena dóttir hans.

Körfuboltaþjálfarinn og bókahöfundurinn Pálmar Ragnarsson heldur þessa dagana fyrirlestra fyrir börn og ungmenni í Afríku.

Auðunn Blöndal rifjaði upp hvað margt hefur gerst síðan „Auddi og Sveppi“ byrjuðu að vinna saman. Í vikunni frumsýndu þeir kvikmyndina Leynilöggan og fékk hún góðar viðtökur. 

Vivian birti flotta mynd af sér frá blaðamannafundi í Locarno.

Íslenski hópurinn vann greinilega þétt saman í ferðinni og gekk ekki alltaf upp að halda fjarlægð á milli einstaklinga.

Inga Lind lenti í góðri veiði og virðist hafa skemmt sér vel.

Eliza Reed og Guðni sýndu Ólympíuförunum okkar stuðning. 

Frambjóðandinn Sigmar Guðmundsson gekk að eiga unnustu sína Júlíönu Einarsdóttur. Fjölmiðlakonan Marta María og Páll Winkel fangelsismálastjóri giftu sig svo í Bessastaðakirkju. 

„Við féllum fyrir hvort öðru og ákváðum á fyrsta deiti að verða hjón. Í dag játuðumst við hvort öðru og ætlum að stíga lífsins veg saman.“

Rúrik Gíslason skoðar Ísland þessa dagana og birti meðal annars myndir af veiði og sundsprett í jökulá.

Sunneva Einars var sumarleg um helgina. Síðar í mánuðinum fer hún af stað með nýja þætti, SAMSTARF, sem sýndir verða á efnisveitunni okkar Stöð 2+. 

Sunddrottningin og leikkonan Ragga Ragnars er spennt fyrir nýju verkefni.

Páll Óskar hélt ávarp fyrir borgaralegan fermingarhóp hjá Siðmennt um helgina. 

„Best að kveikja á perum.“

Fjölskyldan stækkaði hjá Loga Pedro og Hallveigu. 

Tískuskvísur landsins fóru margar á tískuvikuna í Kaupmannahöfn í síðustu viku.

Nökkvi Fjalar hrissti af sér neikvæðnina í kringum ákvörðunina um að láta ekki bólusetja sig.

Vörumerkjastjórinn Erna Hrund lét sig ekki vanta á tískuvikuna í Kaupmannahöfn. Hún á von á sínu þriðja barni og sleppti því að fara í rússíbanana í Tívolíinu í þetta skiptið. 

Þórunn Antonía nýtur lífsins í Króatíu. Einhver fylgjandi var eitthvað ósáttur við myndaval söngkonunnar en aðrar voru þá fljótar að þagga niður í slíkri gagnrýni. 

„Kona á að geta fagnað sjálfri sér, líkamanum sínum & kvenleika sínum í allri sinni dýrð án þess að þurfa að pæla í “perrunum”. það er ekki á ábyrgð kvenna að passa uppá að æsa ekki upp blessuðu perrana.. ef perrarnir eru viðkvæmir fyrir því að æsast upp þá mega þeir loka sig af, loka augunum, vinna í sjálfum sér & taka ábyrgð,“ skrifaði útvarpskonan og fatahönnuðurinn Camilla Rut. 

Gyða Dröfn átti vinkonudag í Bláa lóninu.

Birgitta Líf eigandi Bankastræti club er í fríi á Spáni með fjölskyldunni. Hún spilar þar golf og tennis, fer út að hlaupa og slakar á í sólinni ef marka má samfélagsmiðla. 

Leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson var ánægður með ferðina til Locarno. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir frumraun sína í leikstjórn á mynd í fullri lengd. 

Róbert Wessman sinnir bóndastörfum á heimili sínu í Frakklandi. 

Camilla Rut nýtur þess að vera búin að klára pallinn fyrir utan húsið sitt.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.