Engin formleg tillaga um aukaþing borin upp á fundi stjórnar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. ágúst 2021 08:59 Stjórn KSÍ ætlar að sitja fram að næsta ársþingi í febrúar. Áður en Guðni sagði af sér voru 15 karlar í stjórn KSÍ og tvær konur. KSÍ Stjórn KSÍ ætlar að sitja fram að næsta ársþingi sem fram fer í febrúar. Þó var rætt á fundi stjórnarinnar um helgina að boða til aukaþings þar sem kosin yrði ný stjórn. Þetta herma heimildir fréttastofu.
Stjórn KSÍ fundaði bæði á laugardag og sunnudag í kjölfar þess að ung kona steig fram í viðtali og lýsti því að leikmaður, sem hefði beitt hana kynferðislegu ofbeldi, hefði viðurkennt brot sitt og greitt henni skaðabætur. Unga konan steig fram ósátt við að Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sagði í Kastljósi á fimmtudag að engin kynferðisofbeldismál hefðu komið á borð sambandsins með formlegum hætti. Guðni sagði daginn eftir að hann hefði misminnt og talið að um ofbeldismál væri að ræða. Hávær krafa hefur verið um breytingar hjá KSÍ í kjölfar þessa og fór svo að Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sagði af sér í gær. Enn er ákall um breytingar og margir sem telja ekki næga breytingu að einn aðili taki skellinn. „Þetta er vissulega byrjun. En það er ekki hægt að setja nauðgunarmenninguna og gerendameðvirknina sem ríkir innan KSÍ á einn mann. Það þarf nýja stjórn ekki bara nýjan formann,“ sagði Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, unga konan, á Twitter í gærkvöldi. Fleiri tóku undir. Umræðan tekin en engin tillaga borin upp Fram kom í fréttum í gær að tillaga hefði verið borin upp á stjórnarfundi um að boða til aukaþings KSÍ þar sem ný stjórn yrði kosin. Samkvæmt heimildum fréttastofu var það ekki alveg rétt. Engin formleg tillaga var borin upp en umræðan var þó tekin á fundi stjórnarinnar. Niðurstaða stjórnarinnar hafi verið sú að sitja áfram til ársþingsins í febrúar. Til aukaþings þarf að boða með mánaðarfyrirvara og því komið fram í október þegar slíkt þing færi fram og fjórir mánuðir í hefðbundið ársþing. Borghildur Sigurðardóttir, varaformaður KSÍ og nú settur formaður ásamt Gísla Gíslasyni, sagði í Bítinu í morgun að hún væri meðvituð um skoðun margra á því að stjórnin ætti að víkja. Hún hefði sjálf velt því fyrir sér. Gísli sagði það sama í viðtali við Stöð 2 í gær. Borghildur taldi að ekki hefði verið möguleiki á að allir myndu stíga frá borði og skilja allt eftir óstarfhæft. Viðtalið í heild má heyra að neðan.
KSÍ Fótbolti Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Að mínu mati var ekki möguleiki að allir myndu stíga frá borði og skilja allt eftir óstarfhæft Borghildur Sigurðardóttir, annar af varaformönnum KSÍ, ræddi við Bítið á Bylgjunni í morgun um þá stöðu sem nú er uppi hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Hún segir stjórn sambandsins ekki hafa gengið frá borði í heild sinni þar sem þá yrði sambandið óstarfhæft. 30. ágúst 2021 08:31 Stjórn KSÍ lofar bót og betrun en situr áfram Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu í framhaldi af því að Guðni Bergsson, formaður KSÍ, ákvað að stíga til hliðar. 29. ágúst 2021 18:06 Hetjur innan vallar en víða pottur brotinn utan vallar Þeir sameinuðu íslensku þjóðina með góðu gengi sem náði hápunkti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 og vöktu athygli um allan heim fyrir árangur sinn. Á þeim fimm árum sem hafa síðan liðið hefur hver hrollvekjusagan af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu farið sem eldur í sinu um samfélagið, ýmist í formi óstaðfestra eða staðfestra sagna. 28. ágúst 2021 15:39 Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira
Að mínu mati var ekki möguleiki að allir myndu stíga frá borði og skilja allt eftir óstarfhæft Borghildur Sigurðardóttir, annar af varaformönnum KSÍ, ræddi við Bítið á Bylgjunni í morgun um þá stöðu sem nú er uppi hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Hún segir stjórn sambandsins ekki hafa gengið frá borði í heild sinni þar sem þá yrði sambandið óstarfhæft. 30. ágúst 2021 08:31
Stjórn KSÍ lofar bót og betrun en situr áfram Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu í framhaldi af því að Guðni Bergsson, formaður KSÍ, ákvað að stíga til hliðar. 29. ágúst 2021 18:06
Hetjur innan vallar en víða pottur brotinn utan vallar Þeir sameinuðu íslensku þjóðina með góðu gengi sem náði hápunkti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 og vöktu athygli um allan heim fyrir árangur sinn. Á þeim fimm árum sem hafa síðan liðið hefur hver hrollvekjusagan af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu farið sem eldur í sinu um samfélagið, ýmist í formi óstaðfestra eða staðfestra sagna. 28. ágúst 2021 15:39