Lífið

Stjörnulífið: Frumsýningarhelgi, stefnumót og berbrjósta sjósund

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga. Samsett/Instagram

Rómeó og Júlía var frumsýnt um helgina við ótrúlega góðar viðtökur áhorfanda. Um er að ræða einstaka uppsetningu á þessu þekkta verki Shakespeare.

 Joey Christ var á meðal þeirra sem skellti sér í leikhús um helgina að sjá Sturlu Atlas og Ebbu Katrínu túlka Rómeó og Júlíu.

Eliza Reed var ánægð með sýninguna og hvetur alla til að fara í leikhús.

Söngkonan Bríet fer með stórt hlutverk í sýningunni og syngur auðvitað líka nokkur lög.

Sigga Dögg, kynfræðingur og þáttastjórnandi Allskonar kynlíf, fór berbrjósta í sjósund og í náttúruperluna Guðlaug á Akranesi. 

„það var sjúklega næs og enginn pældi neitt sérstaklega í því.“

Sólrún Diego nýtur sín í Barcelona. Hún kom móður sinni á óvart og bauð henni út á fimmtugsafmælinu. Flugmiðinn var í afmælispakkanum.

Knattspyrnukonan Sara Björk er komin þrjátíu vikur á leið en hún á von á sínu fyrsta barni.

Aron Can er spenntur að sýna fólki fyrstu fatalínuna sína. 

Tískubloggarinn Elísabet Gunnars er flutt inn á nýtt heimili fjölskyldunnar á Íslandi. Elísabet hefur búið erlendis í mörg ár en þau gera nú upp fallegt hús í Reykjavík og sýnir hún frá framkvæmdunum á Instagram.

Feðgarnir Jón Jónsson og Jón Tryggvi voru flottir í stíl þegar þeir spiluðu fótbolta saman um helgina. 

Albert hélt skemmtilegt vinkvennakaffiboð um helgina.

Söngkonan Jóhanna Guðrún birti skemmtilega speglamynd af sér. Eins og kom fram á Vísi fyrir helgi er Jóhanna Guðrún skilin við Davíð Sigurgeirsson. 

Hlauparinn Mari Järsk var fyrsta konan í mark í utanvegahlaupinu Eldslóðin um helgina.

Áhrifavaldurinn Camilla Rut hélt upp á afmælið sitt um helgina. Hún segist aldrei hafa verið betri.

„Síðasta árið var eitt mest krefjandi hingað til en samt svo fallegt - bæði andlega sem & líkamlega.“

Bára og Dóra Júlía fóru á stefnumót um helgina í tilefni af 24 ára afmæli Báru.

Annie Mist birti skemmtilega myndasyrpu og hvatti fylgjendur sína til þess að borða grænmeti.

Jóhanna Helga er þakklát fyrir klettana í lífi sínu. Hún steig fram í viðtali fyrir helgi og lýsti samskiptum sínum við Kolbein Sigþórsson sem mikið hefur verið fjallað um síðustu daga.

Fyrsti þáttur af Kviss var sýndur um helgina á Stöð 2.

Linda Pétursdóttir eltir draumana og trúir því að allt sé hægt. 

„Sé nægur vilji fyrir hendi og svo framarlega sem maður leggur á sig vinnu til að ná markmiðum sínum. ⁠“

Rakel Tómas lokaði sýningu sinni á Grettisgötu.

Sara Sigmundsdóttir eignaðist nýjan hvolp sem hefur fengið nafnið Simbi. 

Svala Björgvins fór í förðun og setti hárlengingar í taglið. 

Eva Ruza rifjaði upp stórkostlegt Instagram-myndband Evu Laufeyjar þar sem hún sagði frá óheppilegu tannvandamáli. 

Erna Kristín birti sjálfsmynd sem margir foreldrar tengja eflaust við.

Marín Manda tekur fagnandi á móti haustinu og öllu sem því fylgir. 

Binni Glee telur niður í frumsýningu Æði 3 þann 9. september næstkomandi.

Bubbi er komin með enn ein ný gleraugu. 

„Mér ekki við bjargandi“

Vilborg Arna skoðaði fossa um helgina.


Tengdar fréttir

„Þú drullaðir yfir mig fyrir framan alla“

Þriðja þáttaröðin af Æði fer í sýningu á Stöð 2 og Stöð 2+ þann 9. september næstkomandi. Patrekur Jaime Binni Glee og Bassi Maraj fara á kostum í þessum raunveruleikaþáttum og bíða margir spenntir eftir frumsýningunni.

Jóhanna Guðrún og Davíð hvort í sína áttina

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og tónlistarmaðurinn Davíð Sigurgeirsson hafa endað hjónaband sitt. Jóhanna Guðrún staðfesti þetta í samtali við fréttastofu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.