Viðskipti innlent

Skipta rekstrinum upp og flytja í ný dótturfélög

Eiður Þór Árnason skrifar
Skeljungur rekur meðal annars bensínstöðvar Orkunnar.
Skeljungur rekur meðal annars bensínstöðvar Orkunnar. vísir/kolbeinn Tumi

Stjórn Skeljungs hyggst skipta rekstrareiningum félagsins upp og flytja stærstan hluta þeirra í tvö ný dótturfélög. Breytingin er sögð liður í því að skerpa frekar á áherslum í rekstri Skeljungs. 

Starfsemi annars dótturfélagsins verður einkum á sviði þjónustu til einstaklinga svo sem rekstur þjónustustöðva Orkunnar, Extra, 10-11, Löðurs bílaþvottastöðva, apóteka Lyfsalans og Lyfjavals, rekstri á Gló og ýmsum fasteignum tengdum framangreindum rekstri. Þá mun félagið halda á eignarhlutum í Brauð & Co ehf. og Wedo ehf. sem rekur Heimkaup.

Starfsemi Skeljungs hf. muni í auknum mæli snúa að stýringu eignarhluta 

Starfsemi seinna félagsins mun fyrst og fremst snúa að sölu og þjónustu við fyrirtæki, dreifingu og innkaupum á eldsneyti, smurolíum, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja. 

Þjónusta og sala til stórnotenda, í útgerð, flugi og verktöku verður einnig hluti af starfsemi sama félags ásamt fasteignum tengdum framangreindum rekstri. Þá mun félagið halda á eignarhlutum í Íslenska Vetnisfélaginu ehf., EAK ehf. og fleiri tengdum félögum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skeljungi sem verður móðurfélag ofangreindra rekstrarfélaga. Munu verkefni Skeljungs í auknum mæli snúa að stýringu eignarhluta í rekstrarfélögum, auk annarra fjárfestinga eftir atvikum. Ráðgert er að Skeljungur hf. verði áfram skráð félag á markaði.

Fjárfestahópurinn Strengur, undir forystu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur, eignaðist tæpan meirihluta hlutafjár í Skeljungi í fyrra. Fjárfestarnir höfðu áður gefið út að þeir vildu afskrá Skeljung af markaði.

Boða til hluthafafundar

Nýverið tilkynnti stjórn Skeljungs að hún hafi hafið einkaviðræður við kaupendahóp vegna sölu á færeyska dótturfélaginu P/F Magn. Þá stendur til að setja mikinn fjölda fasteigna Skeljungs í formlegt söluferli. 

Stjórnin hyggst boða til hluthafafundar í félaginu þar sem heimild til sölu á P/F Magn og uppskiptingu rekstrar Skeljung verður meðal annars tekin fyrir.

„Þessar breytingar eru afrakstur vinnu við mótun nýrrar stefnu félagsins um að sækja fram og nýta tækifæri á markaðnum til sóknar. Við teljum stofnun þessara dótturfélaga vera mikilvægan þátt í að skerpa áherslur þeirra tækifæra sem félagið býr yfir,“ segir Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, í tilkynningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Við­skipta­vinum brá í brún við ó­vænta rukkun í heima­banka

Margir viðskiptavinir Orkunnar lentu í því nýlega að fá afturvirkan reikning frá Orkunni. Málið tengist vanda í samskiptum tölvukerfa Orkunnar og Salt pay. Samkvæmt heimildum fréttastofu hleypur heildarupphæðin vegna málsins á hundruðum milljóna króna.

Skeljungur setur fjölda fasteigna á sölu

Skeljungur hf. hefur hafið söluferli á stórum hluta fasteignasafns síns. Um er að ræða flestar bensínstöðvar félagsins á stórhöfuðborgarsvæðinu.

Skeljungur eykur umsvif sín í lyfsölu

Fjölorkufélagið Skeljungur verður meirihlutaeigandi í apótekakeðjunni Lyfsalanum og Lyfjavali með viðskiptum sem tilkynnt var um í dag. Kaupin eru sögð liður í að minnka vægi eldsneytissölu í rekstri Skeljungs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×