Þorvaldur dæmdi víti á Kára í uppbótartíma leiksins, í stöðunni 2-1 fyrir Víkingi sem vann leikinn og komst á topp Pepsi Max-deildarinnar í fótbolta.
Fyrst þurfti þó að leysa upp miklar ryskingar á milli leikmanna liðanna sem enduðu með því að Kjartan Henry Finnbogason var rekinn af velli og Þórður Ingason, varamarkvörður Víkings, fékk einnig rautt spjald.
Þorvaldur dæmdi vítið eftir að hafa ráðfært sig við Gylfa Má Sigurðsson aðstoðardómara:
„Já, það er rétt. Ég horfi á atvikið og sé að það er eitthvað rangt við þetta. Mér finnst boltinn taka stefnubreytingu með grunsamlegum hætti. Stuttu seinna fæ ég í eyrað frá Gylfa Má, aðstoðardómara mínum, að hann þurfi að ræða við mig. Þegar ég ætlaði til hans verður allt vitlaust og við þurftum að taka á því, áður en við tókum ákvörðun um vítið,“ sagði Þorvaldur. Innslagið má sjá hér að neðan:
Aðeins höndin sem kemur til greina
Kári slapp reyndar við gult spjald fyrir höndina, og þar með við að vera rekinn af velli með sitt annað gula spjald í síðasta deildarleik sínum á ferlinum. Hann verður þó í banni í lokaumferðinni á laugardag, þar sem Víkingur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn, því hann fékk sína fjórðu áminningu í Pepsi Max-deildinni í sumar.
Eftir að hafa skoðað atvikið vel kvaðst Þorvaldur viss um að rétt hefði verið að dæma vítið, sem hefði getað reynst svo örlagaríkt:
„Já, við erum búnir að liggja yfir þessu í dag félagarnir og það er klár stefnubreyting á boltanum. Það getur ekki orðið nema við snertingu og það er höndin sem kemur til greina þar. Eða vindhviða, og ég get vottað það að það var logn í Vesturbænum í gær.“
Pálmi Rafn Pálmason tók vítaspyrnuna en Ingvar Jónsson markvörður Víkings varði hana og tryggði þar með Víkingi sigur og sæti á toppi deildarinnar.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.