Víkingur Reykjavík

Víkingur Reykjavík

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Víkingi í Reykjavík.

Fréttamynd

Frá Kefla­vík og beint á Parken: „Draumur flestra ungra stráka“

Eftir að hafa aðeins spilað þrettán leiki í Bestu deild karla með nýliðum Keflavíkur var Davíð Helgi Aronsson mættur beint í byrjunarlið Lyngby gegn stórliði FC Kaupmannahafnar á Parken. Þessi nítján ára miðvörður segir að lánsdvalir hjá Njarðvík og Keflavík hafi reynst dýrmætar og hann stefnir á að komast í A-landsliðið eins og frændi hans, Kári Árnason.

Fótbolti

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sjáðu tvennu Han­sen og markið sem var tekið af

Nikolaj Hansen var hetja Víkings í 2-1 sigri gegn ísraelska liðinu Hapoel Be‘er Sheva í undankeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöld. Mörkin úr leiknum, þau löglegu og hið ólöglega, má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Fótbolti
Fréttamynd

Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur

Víkingar vinna enn heimaleiki sína í Evrópukeppni þökk sé Nikolaj Hansen. Valskonur eru afskaplega slakar og markasúpa var í Bestu deild kvenna. Svo náði Afturelding sögulegum árangri. Besta sætið fór yfir sviðið.

Fótbolti
Fréttamynd

Pressuóðir Ísraelar í Víkinni

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, er temmilega bjartsýnn fyrir leik liðsins við Hapoel Beer Sheva frá Ísrael í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í Víkinni í kvöld. Búast megi við opnum og skemmtilegum leik.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Ég þakkaði bara Guði“

„Alltaf gaman að vinna, en extra gaman að koma til baka aftur,“ sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, eftir 1-2 seiglusigur á Víkingum í botnbaráttuslag í Víkinni í dag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verk­efna“

„Þetta var ekki góður leikur hjá okkur, mikið af tæknifeilum. Við vorum bara ekki líkir sjálfum okkur. Við vorum að taka góð hlaup bak við vörnina og þá var sendingin kannski of löng, þannig einfaldar sendingar voru að klikka.“ sagði Sölvi Geir Ottesen Jónsson þjálfari Víkings eftir fyrsta tapleik liðsins í Bestu deildinni í sumar gegn Þór á Akureyri í dag, 2-1. 

Íslenski boltinn