Flutti frá Los Angeles til Íslands til að markaðssetja sultur Eiður Þór Árnason skrifar 22. september 2021 10:26 Belinda Navi hefur meðal annars starfað fyrir Belkin International. Aðsend Good Good hefur ráðið Belindu Navi í starf markaðsstjóra með aðsetur í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík. Belinda Navi fluttist búferlum frá Los Angeles til Reykjavíkur til að starfa fyrir Good Good og hefur þegar hafið störf.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri hjá Good Good, segir að ráðningin komi til með að styrkja markaðsstarf sprotafyrirtækisins á heimsvísu, einkum í Norður-Ameríku. „Belinda er með yfirgripsmikla reynslu sem mun nýtast Good Good vel við vörumerkjaþróun, markaðsrannsóknir og við að greina ný markaðstækifæri,“ segir hann í tilkynningu. Var markaðsstjóri hjá WePlay Networks Belinda Navi er með MBA gráðu frá INSEAD og B.A bókmenntagráðu frá Brown University. Hún starfaði áður sem markaðsráðgjafi fyrir viðskiptavini á borð við Amobee Inc, Belkin International og SunAsia Energy Inc og sem markaðs- og þróunarstjóri fyrir WePlay Networks. Good Good er íslenskt sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á matvælum án viðbætts sykurs. Vöruframboðið samanstendur meðal annars af sultum, sætuefnum og keto-börum. Vöruþróun fyrirtækisins, auk sölu- og markaðsstarfs, fer fram á Íslandi en framleiðsla fer fram í Hollandi og Belgíu. Að sögn forsvarsmanna fást vörur fyrirtækisins nú í rúmlega tíu þúsund verslunum í sextán löndum.
Vistaskipti Matur Nýsköpun Mest lesið Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Viðskipti innlent Discover hefur flug milli München og Íslands Viðskipti innlent Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Jóna Björk tekur við Garðheimum Viðskipti innlent Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Fleiri fréttir Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Efling hafi líklega sett Íslandsmet í óhróðri Bogi í Icelandair kaupir einbýlishús af Pétri í Eykt Fyrrverandi þingmenn vilja verða forstjórar Kríu Þrjú teymi vilja hanna og byggja nýju þjóðarhöllina Sjá meira