Rekstraraðilum verður bannað að halda eftir þjórfé Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. september 2021 07:45 Veitingamenn geta haldið eftir þjórfé sem greitt er með korti en þjórfé í peningum er lögum samkvæmt eign þess sem fær það afhent. Getty/Robert Alexander Stjórnvöld á Bretlandseyjum hyggjast banna atvinnurekendum að halda eftir eða taka hluta þess þjórfé sem viðskiptavinir skilja eftir fyrir þjóna og annað starfsfólk í þjónustustörfum.
Paul Scully, vinnumarkaðsráðherra, segir nýjum lögum ætlað að tryggja að þjórféð rati í vasa þeirra sem unnu fyrir því. Ef atvinnurekendur brjóta gegn þeim verður hægt að sækja mál gegn þeim fyrir vinnumarkaðsdómstól, þar sem þeir eiga yfir höfði sér sekt eða greiðslu skaðabóta. Talið er að um tvær milljónir manna vinni þjónustutengd störf, þar sem þjórfé er oftar en ekki hluti af launakjörunum. Breskir miðlar hafa áður greint frá því að yfirmenn á veitingakeðjum á borð við Pizza Express, Cote Brasserie og Bill's hafi haldið eftir þjórfé eða rukkað þjóna um „afgreiðslugjald“ þegar þjórféð var greitt með debet- eða kreditkortum. Scully segir löggjöfina munum verða til þess að viðskiptavinir geta treyst því að þeir fái þjórféð sem eiga að fá það og þá hefur verið bent á nauðsyn þess að skýra lögin með tilliti til þess að í dag greiða flestir þjórfé með korti. Eins og sakir standa ráða atvinnurekendur því í raun hvort þeir skila þjórfé sem greitt er með korti til starfsmanna en þjórfé sem greitt er með peningum er lagaleg eign þess starfsmanns sem fær það afhent. Samtök sem berjast fyrir láglaunafólk fagna löggjöfinni en segja stjórnvöld sömuleiðis eiga að beita sér fyrir hærri launum í þjónustugeiranum. BBC fjallar um málið.
Bretland Veitingastaðir Vinnumarkaður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira