Fjórða félagið sem vinnur langþráðan stóran titil eftir að Pablo mætir á svæðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. september 2021 13:00 Pablo Punyed er hér fyrir miðju fyrir aftan Íslandsmeistarabikarinn eftir sigur Víkinga um helgina. Vísir/Hulda Margrét Salvadorinn Pablo Punyed er mikill sigurvegari en það hefur hann sýnt og sannað ítrekað í íslenska fótboltanum. Hann varð Íslandsmeistari með Víkingum í lokaumferð Pepsi Max deild karla á laugardaginn. Pablo Punyed varð líka þarna Íslandsmeistari með sínu þriðja félagi og þetta sumar er enn eitt dæmið um að Palbo mætir á svæðið og fljótlega enda löng bið hjá hans nýja félagi eftir titli. Síðustu fjögur félög Pablo á Íslandi hafa öll unnið stóran titil eftir að hann fór að spila með félaginu. Pablo spilaði fyrst á Íslandi með Fjölni árið 2012 en fyrsta tímabilið hans í efstu deild var með Fylki 2013. Ævintýrin fóru hins vegar að gerast þegar hann samdi við Stjörnuna fyrir 2014 tímabilið. Frá árinu og með árinu hefur Pablo Punyed unnið stóran titl, Íslandsmeistaratitil eða bikarmeistaratitil, með fjórum mismunandi félögum. Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins á hans fyrsta tímabili, ÍBV vann sinn fyrsta bikar í nítján ár á hans öðru ári í Eyjum, KR varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sex ár á hans öðru ári og Víkingar urðu í ár Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í þrjá áratugi á hans fyrstu leiktíð í Víkinni. Það fylgir líka sögunni að Stjarnan hefur ekki orðið Íslandsmeistari eftir að hann fór, ÍBV hefur ekki unnið titil síðan að hann fór og KR-ingar unnu ekki titil á sínu fyrsta tímabili án Pablo.
Pablo Punyed varð líka þarna Íslandsmeistari með sínu þriðja félagi og þetta sumar er enn eitt dæmið um að Palbo mætir á svæðið og fljótlega enda löng bið hjá hans nýja félagi eftir titli. Síðustu fjögur félög Pablo á Íslandi hafa öll unnið stóran titil eftir að hann fór að spila með félaginu. Pablo spilaði fyrst á Íslandi með Fjölni árið 2012 en fyrsta tímabilið hans í efstu deild var með Fylki 2013. Ævintýrin fóru hins vegar að gerast þegar hann samdi við Stjörnuna fyrir 2014 tímabilið. Frá árinu og með árinu hefur Pablo Punyed unnið stóran titl, Íslandsmeistaratitil eða bikarmeistaratitil, með fjórum mismunandi félögum. Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins á hans fyrsta tímabili, ÍBV vann sinn fyrsta bikar í nítján ár á hans öðru ári í Eyjum, KR varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sex ár á hans öðru ári og Víkingar urðu í ár Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í þrjá áratugi á hans fyrstu leiktíð í Víkinni. Það fylgir líka sögunni að Stjarnan hefur ekki orðið Íslandsmeistari eftir að hann fór, ÍBV hefur ekki unnið titil síðan að hann fór og KR-ingar unnu ekki titil á sínu fyrsta tímabili án Pablo. Sigurvegarinn Pablo Punyed: Fer í Stjörnuna 2014 Árið 2014 verður Stjarnan Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögunni Fer í ÍBV 2016 Árið 2017 verður ÍBV bikarmeistari og vinnur sinn fyrsta titil í 19 ár. Fer í KR 2018 Árið 2019 verður KR Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 6 ár Fer í Víking 2021 Árið 2021 verður Víkingur Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 30 ár
Sigurvegarinn Pablo Punyed: Fer í Stjörnuna 2014 Árið 2014 verður Stjarnan Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögunni Fer í ÍBV 2016 Árið 2017 verður ÍBV bikarmeistari og vinnur sinn fyrsta titil í 19 ár. Fer í KR 2018 Árið 2019 verður KR Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 6 ár Fer í Víking 2021 Árið 2021 verður Víkingur Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 30 ár
Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Handbolti Varð fyrir eldingu í fótboltaleik en myndbandið er ekki fyrir viðkvæma Fótbolti Wendell Green rekinn frá Keflavík Körfubolti Dauðvona maður kláraði heilan járnkarl Sport Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Körfubolti BKG kveður keppinaut: CrossFit á viðkvæmum stað Sport „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Enski boltinn Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Handbolti Ljótt brot á Arnóri: „Enginn annar hefði spilað með þessa verki“ Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool mætir þýsku meisturunum og nýr stjóri Man. Utd mætir Man. City Sport Fleiri fréttir Snýr aftur í Bestu deildina með ÍBV Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið „Er þetta ekki komið gott af pólitík?“ Skrautlegur ferill á enda: Kaflaskil þegar hann kynntist konunni Andri Rúnar einn af sjö sem kveðja Vestra Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“ Kristinn fékk loksins medalíuna sína og nýjan samning í kaupbæti „Þetta var bara ömurlegt í alla staði“ Ómar strax kominn með starf hjá KSÍ Lenti í stórum jarðskjálfta launalaus í heimsfaraldri Haraldur hættir hjá Víkingi Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Alexander endurnýjar kynnin við Óskar Ákvörðunin hefði verið sú sama ef HK hefði haldið sæti sínu í Bestu deildinni Ákvörðun Ómars kom á óvart: „Þökkum honum fyrir ómetanlegt starf“ Víkingar krefjast refsingar vegna tjónsins en þurfa líklega að treysta á lögreglu Matthías og Kristján taka við Valsliðinu Ómar Ingi þakkar fyrir sig eftir þrjátíu ár Fótboltamamma Íslands í vanda: „Verð að halda með þeim báðum og hvernig fer ég að því?“ Eiður Aron riftir við Vestra Búinn að ná öllu út úr ferlinum: „Finn ég er orðinn sáttur“ Gylfi besti leikmaðurinn í Bestu deildinni samkvæmt tölfræðinni Valur staðfestir í annað sinn að Fanney Inga sé á leið til Svíþjóðar „Hefði verið ógeðslega tilfinning ef allt væri búið og maður væri kominn í frí“ Kristinn Jónsson kinnbeinsbrotinn og fékk heilahristing Túfa stýrir Val á næsta tímabili Fyrsta félagið í áratug sem vinnur hjá báðum kynjum Pétur hafi ekki verið rekinn: „Sameiginleg ákvörðun“ Myndasyrpa: Blikar fögnuðu titlinum með aðdáendum Sjá meira