Lífið

Stjörnulífið: Kosningahelgi og tilfinningalegur rússíbani

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga. Samsett/Instagram

Eins og fór vonandi ekki fram hjá neinum voru Alþingiskosningar hér á landi um helgina og Íslendingar flykktust á kjörstað.

Allir tíu flokkarnir í framboði héldu kosningapartý víða um borgina og var því líf og fjör í Reykjavík.  

Skemmtikrafturinn Eva Ruza skellti sér í Sky lagoon og af myndunum að dæma þá skemmti hún sér mjög vel. Sem hún gerir reyndar oftast þessi brosmildi gullmoli.

Birgitta Líf dansaði í Tinu Turner sýningu Bryndísar Ásmundsdóttur um helgina ásamt Töru Sif Birgis. 

„Þú lofar bara að passa fyrst og fremst upp á sjálfa þig,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra við Unni Eggertsdóttir, sem var kosningastjóri Vinstri grænna og á von á sínu fyrsta barni. 

Aron Can birti af sér flotta mynd.

Söngkonan Þórunn Antonía deildi leyndarmálinu á bak við gott barnaafmæli: Draslið inn í svefnherbergi og afmæliskaka úr kassa. 

Erna Hrund er með ótrúlega flottan meðgöngufatastíl, enda ein best klædda kona landsins að mati okkar á Lífinu. 

Ásmundur Einar Daðason er sáttur með niðurstöður kosninganna og að auki ástfanginn upp fyrir haus.

Bloggarinn Fanney Ingvars hélt upp á þrítugsafmælið sitt um helgina. Bræðurnir Jón Jónsson og Frikki Dór skemmtu gestum í veislunni sem haldin var í Cava Salnum. 

Fjölmiðlafólkið Sindri Sindrason og Þórdís Valsdóttir stýrðu fyrri hlutanum af kosningasjónvarpi Stöðvar 2 í ár. 

Ágústa Eva, okkar eigin Lína langsokkur, berst fyrir réttindum barna. 

Sturla Atlas hélt upp á 29 ára afmælið sitt í gær. 

Berglind Festival gaf fylgjendum sínum tískuinnblástur og birti nokkrar speglasjálfur. 

María Rut frambjóðandi Viðreisnar komst ekki á þing en horfir fram á veginn.

Gummi Emil er að fara að keppa á Arnold mótinu eftir nokkra daga.

Þjálfarinn Sandra Helga er flutt til Los Angiles í nám. Hún gjörsamlega ljómar af hamingju í Hollywood. 

Linda Pétursdóttir deildi fallegri mæðgnamynd. „Að vera móðir Ísabellu er mitt stærsta afrek,“ skrifar hún við myndina.

Kolbrún Pálína fór á hótel um helgina og klæddist ótrúlega fallegum gulum síðkjól.

Áslaug Arna dómsmálaráðherra kaus í hvítu og bláu í Ráðhúsinu. 

Eliza Reed forsetafrú keppti í Bridge um helgina og fékk reynslubolta með sér í lið. 

Sólborg heimsótti RÚV á kosningakvöld. 

Diljá Mist, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var með bróður sinn með sér á kosningavökunni. 

Sálfræðingurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Beggi Ólafs fór í þemapartý og fötin voru alveg upp á tíu. 

Pattra birti fallega paramynd. 

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fékk sér vöfflur á kjördag. 

Það er dansað á sunnudögum heima hjá Annie Mist.

Brynja Dan frambjóðandi Framsóknar hvatti fólk til þess að nýta sinn kosningarétt. Hún lýsti kosningabaráttunni einfaldlega svona: 

„Einn stærsti rússíbani lífs míns og ég hef setið þá marga.“

Móeiður kíkti út og birti af sér nýjar skvísumyndir. 

Jóhanna Helga er í Noregi og leyfir fylgjendum sínum að fylgjast með ferðalaginu.

Bríet sýndi Rómeó og Júlíu í Þjóðleikhúsinu um helgina. 

Söngkonan GDRN hélt ótrúlega vel heppnaða tónleika í Háskólabíói um helgina. 

Hugrún Halldórsdóttir er í tökum fyrir þættina Draumaheimilið sem sýndir eru á Stöð 2.

Aníta Briem fagnaði tilnefningum til Edduverðlauna fyrir Ráðherrann. Ólafur Darri er einnig tilnefndur fyrir leik sinn í þáttunum á móti Anítu. 

Helgi Ómarsson ljósmyndari hefur það gott í Svíþjóð.


Tengdar fréttir

Sigur­partýið lét aðrar kosninga­vökur líta út eins og fermingar­veislur

Blaðamaður og ljósmyndari tóku púlsinn á öllum kosningarvökum flokkanna í gær. Tíu partý dreifð um allt höfuðborgarsvæðið og var stemningin mjög ólík á hverjum viðkomustað, allt frá rólegu kaffiboði í kirkju yfir í tónleika Herra Hnetusmjörs í troðfullu partýi Framsóknarmanna úti á Granda en þar var stemningin áberandi best. 

Kosningapartý á Nesinu sem verður seint toppað

Logi Ágústs, Glúmur og Lilja í epísku kosningapartý á Seltjarnarnesinu? Ekki alveg en einhver hefði þó látið blekkjast. Hressir vinir blésu til partýs í tilefni kosninga þar sem allir klæddu sig upp sem þingmenn og voru í banastuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.