Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að gera breytingar á starfseminni, sem eiga að stjórna áherslum opinberra geimferða næstu áratugina. Markmiðið er að leggja meiri áherslu á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra. Umfang einkafyrirtækja í geimferðum á sporbaug og til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar ISS hefur aukist verulega á undanförnum árum. Breytingarnar voru kynntar fyrir viku síðan og taka þær mark af þeim þessum breytingum og Artemis-áætluninni. Þær fela í sér að starfsmenn NASA horfa í auknu mæli til tunglsins og Mars og ryðja brautina lengra út í sólkerfið. Með það í huga hefur þeim hluta NASA sem heldur utan um mannaðar geimferðir verið skipt upp í tvær nýjar deildir. Í stuttu máli sagt munu starfsmenn annarrar deildarinnar vinna að þróun þeirrar tækni sem nauðsynleg er til lengri geimferða til tunglsins og til Mars. Starfsmenn hinnar munu nota þá tækni. Auk þess að vera ætlað að skila betri árangri er breytingunum ætlað að einfalda fjármögnunarkerfi NASA til muna. Ríkisstjórn Joes Biden, forseta, lagði breytingarnar til, en samkvæmt frétt Verge eru þær í samræmi við fyrri hugmyndir innan ríkisstjórnar Donalds Trump, fyrrverandi forseta. Hér má sjá ársgamalt kynningarmyndband NASA um Artemis-áætlunina. Gríska gyðjan Artemis er systir guðsins Apollos. Eins og frægt er var það nafn verkefnisins sem sneri að tunglferðunum sem farnar voru á árum áður. Innan Artemis-áætlunarinnar vinna starfsmenn NASA og margar annarra fyrirtækja og stofnana að ýmsum verkefnum sem snúa að geimferðum út fyrir sporbraut jarðarinnar. Þar á meðal má nefna SpaceX sem er að þróa sérstaka gerð Starship-geimfarsins til að bera geimfara NASA til tunglsins á næstu árum. Sjá einnig: Geimfararnir sem stefna á tunglið Til stóð að lenda geimförum á tunglinu árið 2024 en verulega ólíklegt er að það markmið náist. Sjá einnig: Ekki hægt að lenda á tunglinu 2024 vegna tafa við þróun geimbúninga Lockheed Martin vinnur einnig að geimfari sem senda á til tunglsins. Einnig má nefna Gateway-áætlunina sem snýr að því að koma upp nýrri geimstöð á braut um tunglið. Þá geimstöð á að nota sem stökkpall lengra út í sólkerfið. Hér má sjá myndband NASA um af hverju fara á til tunglsins á nýjan leik. Samkvæmt Artemis-áætlunni ætlar NASA að skjóta geimförum á loft með nýrri tegund eldflauga sem kallast Space Launch System. Þróun eldflauganna, sem er að mestu á höndum NASA og Boeing, hefur verið mun dýrari en upprunalega stóð til og dregist verulega en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir fyrsta geimskoti eldflaugarinnar árið 2016. Gagnrýnendur SLS hafa sagt að eina markmið þróunarvinnunnar sé að skapa störf í kjördæmum tiltekinna þingmanna. Neðsti hluti SLS-eldflaugarinnar á færanlegum skotpalli í Kennedy Space Center í Flórída.NASA Geimfararnir munu svo nota Orion-geimfar Lockheed Martin til að ferðast til Gateway-geimstöðvarinnar. Þar eiga þeir svo að fara um borð í Starship SpaceX og nota það til að lenda á tunglinu. Sjá einnig: NASA leitar hugmynda um tungljeppa Til stendur að skjóta Artemis-1, ómönnuðu Orion-geimfari á loft í lok þessa árs eða byrjun þess næsta. Artemis-2 á svo að senda geimfara á sporbraut um tunglið og Artemis-3 snýst um að lenda mönnuðu geimfari á tunglinu. Hér má sjá stutt kynningarmyndband NASA um Artemis-1. Rannsóknir sýna að finna má ís í gígum á pólum tunglsins og þann ís má bæði nota til að framleiða eldsneyti fyrir geimför og halda við byggð manna á tunglinu. Með því að skjóta geimförum af stað frá tunglinu í stað yfirborðs jarðarinnar væri hægt að spara mikið eldsneyti og í senn gera geimförum kleift að fljúga hraðar. Sérstaklega stendur til að nota tunglið sem stökkpall til Mars. Bandaríkin Geimurinn Tunglið Mars SpaceX Boeing Tækni Vísindi Artemis-áætlunin Joe Biden Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Atburðarás gærdagsins í myndum Innlent