Erlent

Lög­regla hættir leit að Ís­lendingnum á Öland

Atli Ísleifsson skrifar
Strönd nærri Borgholm á Öland. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Strönd nærri Borgholm á Öland. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty

Lögregla á Öland í Svíþjóð hefur hætt leit að fertugum Íslendingi sem féll af sæþotu í Köpingsvik við bæinn Borgholm á laugardag.

„Við getum ekki framkvæmt fleiri leitaraðgerðir. Leitarsvæðið er einfaldlega of stórt,“ segir Robert Loeffel, talsmaður lögreglunnar á Borgholm í samtali við sænska fjölmiðla að því er segir í frétt Ölandsbladet.

Sjónarvottur, sem stóð á bryggju síðdegis á laugardag, tilkynnti að hann hafi séð manninn falla af sæþotunni um tvö hundruð metra frá landi. Sjónarvotturinn sagðist hafa séð manninn vera í blautbúningi, en ekki björgunarvesti.

Notast hefur verið við báta, þyrlur og kafara við leitina, en hún hefur enn engan árangur borið.

Utanríkisráðuneytið staðfesti í samtali við fréttastofu í gær að málið væri á borði borgaraþjónustu og að starfsmenn ráðuneytisins séu í samskiptum við aðstandendur mannsins.

Sjálfboðaliðar á vegum félagasamtakanna Missing People Kalmar hafa staðið fyrir leit síðustu daga og muni halda því áfram.

Lögregla segir málið algjöra ráðgátu. Straumar og vindar á þessum slóðum hafi verið í átt að landi þegar atvikið átti sér stað.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×