Segir fyrri hálfleik sinna manna hafa verið miðlungs Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. október 2021 21:01 Klopp að leik loknum. Robbie Jay Barratt/Getty Images „Mögulega minna en miðlungs, við vorum of afslappaðir, bæði með og án bolta,“ sagði Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, eftir 2-2 jafntefli lærisveina sinna gegn Manchester City. „
Ég var mjög sáttur þegar dómari leiksins flautaði til hálfleiks því við þurfum að lagfæra fullt af hlutum, sem við og gerðum. Manchester City gerði margt rétt í fyrri hálfleik og viðkomumst aldrei í takt við leikinn. Við náðum aldrei að spila okkar leik.“ „Í síðari hálfleik gjörbreyttum við spilamennsku okkar. Ef við hefðum spilað allan leikinn eins og við spiluðum síðari hálfleik hefði ég elskað að vinna leikinn, en miðað við fyrri hálfleikinn er ég sáttur með stigið.“ „Við spiluðum vel í síðari hálfleik og skoruðum frábær mörk. Skilaboðin voru að spila boltanum betur milli manna, við gerðum það ekki í fyrri hálfleik.“ „Þetta er ekki fyrsta svona markið sem Mo Salah skorar. Mig rámar í að hann hafi skorað svipuð mörk gegn Napoli og Tottenham Hotspur. Salah er einn af bestu leikmönnum í heimi í dag, það er bara þannig.“ „Ef Lionel Messi og Cristiano Ronaldo hefðu skorað þessi mörk hefði verið sagt að hann væri í heimsklassa því þetta var frábært mark. Hann lagði upp fyrra markið á Sadio Mané sem var einnig frábært mark,“ sagði Klopp aðspurður út í magnað mark Salah í dag. „Pep (Guardiola) var nokkuð brjálaður yfir því. Ég sá ekki atvikið en ég sá viðbrögð Pep en sá auðvitað ekki nákvæmlega hvað (James) Milner gerði. Milly gerði vel í fyrri hálfleik því það er ekki auðvelt að verjast þessum gaurum,“ sagði Klopp að endingu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Arnar missti af ræsingu en vann: „Ha? Eru þau farin?“ Sport „Meiri möguleikar fyrir mig til þess að sýna mig í Evrópu“ Fótbolti Átök Arnars og Óskars hófust í yngri flokkum: Dramatík í úrslitum á Akureyri Íslenski boltinn Leverkusen að kaupa leikmann Liverpool fyrir metverð Fótbolti Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Enski boltinn Pacers knúðu fram oddaleik Körfubolti Sjáðu þáttinn um TM-mótið: Stuðhundur, afi þjálfari og flottar fléttur Fótbolti Tíu ára kylfingur fór holu í höggi á Íslandsmóti Golf „Verðum þarna úti með 23 leikmenn og 24 starfsmenn í kringum liðið“ Fótbolti Botafogo vann og hélt hreinu gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Sjá meira