Park biður stuðningsmenn United að hætta að syngja hundakjötssönginn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. október 2021 09:01 Ji-Sung Park naut mikillar hylli meðal stuðningsmanna Manchester United. getty/Matthew Peters Ji-sung Park hefur beðið stuðningsmenn Manchester United um að hætta að syngja lag um sig sem inniheldur niðrandi orð um Suður-Kóreumenn.
Park lék með United á árunum 2005-12 og var í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins. Þeir syngja enn um hann en Park vill að þeir hætti því. Í laginu er sungið um að Suður-Kóreumenn borði hundakjöt. Park fékk nóg eftir að hann heyrði stuðningsmenn United syngja lagið fyrir leikinn gegn Wolves þegar landi hans, Hwang Hee-chan, var kynntur sem nýr leikmaður Úlfanna. „Það var mjög leiðinlegt fyrir hann að heyra þetta. Ég veit að stuðningsmönnunum gengur ekkert illt til en ég verð samt að biðja fólk um að hætta að nota þetta orð sem er móðgandi fyrir íbúa Suður-Kóreu,“ sagði Park. „Þetta orð er mjög óþægilegt fyrir Suður-Kóreumenn og ég finn til með yngri leikmönnunum sem þurfa að heyra þetta. Margt hefur breyst í Suður-Kóreu. Það er satt að við borðuðum einu sinni hundakjöt en í dag hatar fólk þetta, sérstaklega yngri kynslóðin. Menningin hefur breyst. Ég bið stuðningsmennina um að hætta að syngja þetta orð. Það veldur Suður-Kóreumönnum óþægindum að heyra það. Nú er nóg komið.“ Manchester United hefur beðið stuðningsmenn liðsins að hlýða Park og hætta að syngja um hundakjötsátið. Park varð fjórum sinnum Englandsmeistari með United og einu sinni Evrópumeistari. Hann varð fyrsti Asíubúinn til að vinna Meistaradeild Evrópu.
Enski boltinn Suður-Kórea Mest lesið City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Lúxemborg - Ísland | Hvernig svara menn fyrir sig? Fótbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Fleiri fréttir Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Sjá meira