Lífið

Stjörnulífið: Stórsigur, barnalán og ný sambönd

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Lífinu Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga.
Stjörnulífið er liður á Lífinu Vísi en þar er farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga. Samsett/Instagram

María Sigrún Hilmarsdóttir fréttaþulur á RÚV nýtur lífsins á Ítalíu þessa dagana. Þar birtir hún flottar myndir af sér á svæðinu, í góðu veðri og á fallegum slóðum.

Eins og fjallað var um hér á Lífinu hélt Bríet vel heppnaða tónleika í Eldborgarsal Hörpu á föstudag. Hún skrifaði einfaldlega á Instagram: „Takk, Ísland“ en við segjum bara TAKK BRÍET. 

Joey Christ og Tatjana Dís frumsýndu verkið sitt Sýningin okkar í Þjóðleikhúsinu um helgina. 

Knattspyrnukonan Elín Metta Jensen birti skemmtilega mynd af Ými Gröndvald listamanni á Instagram í treyju merktri Jensen. Á bakinu er einnig talan tíu, sem er númerið sem Elín Metta spilar með hjá liði Vals.

Skemmtikrafturinn Eva Ruza lenti í sóttkví og þurfti því að afboða sig á viðburð sem hún átti að stjórna í Vestmannaeyjum um helgina. Hún horfir þó á björtu hliðarnar.

„Gæti verið verra samt- er allavega ekki blóðheitur Man Utd. fan eins og eiginmaðurinn, sonur og faðir....“

Þórunn Antonía er „Flæðandi. Óstöðvandi. Þakklát. Mild og sterk.“

Eliza Reed kom fram á kröftugri kvennastund Krafts í Hörpunni fyrir helgi. 

Björk hélt aðra tónleika um helgina og var flott eins og alltaf.  Hún klæddist kjól frá Balenciaga og grímu frá James T. Merry. Hún var með eyrnalokka frá Aurum. Steinunn Ósk sá um hár söngkonunnar og Sunna Björk Erlingsdóttir sá um að farða hana. 

Sunneva Einars og Birta Líf Ólafsdóttir héldu Teboðið live show í Hörpu. Hlaðvarpsstjórnendurnir klæddu sig auðvitað í stíl. 

Jóhanna Helga mætti auðvitað að styðja sínar konur í Hörpu og fór hún upp á svið  og rifjaði upp menntaskólaárin með þeim.

Ástrós Rut Sigurðardóttir frambjóðandi Viðreisnar og fyrrum formaður Krafts, á von á sínu þriðja barni. Ástrós og Davíð kærasti hennar eignuðaðist dreng í apríl á þessu ári svo það verður því aðeins ár á milli barna hjá þeim. Ástrós átti svo eina dóttur fyrir. 

„Ástin er alls ráðandi þessa dagana. Ég hef svo sannarlega verið bænheyrð með að fá stóra fjölskyldu, Davíð er að melta þetta. Erum spenntari en allt fyrir 09.04.’22“

Beggi Ólafs og Hildur sif eru að njóta lífsins á Ítalíu þessa dagana.

Kolbrún Pálína fór á árshátíð Icepharma en hún hóf nýlega störf hjá fyrirtækinu. 

Sólborg frumsýndi nýja sýningu í Reykjanesbæ um helgina. Ágúst Óli Sigurðsson hjá Feðgar markaðsstofu mætti með blóm handa sinni konu. Sæt saman!

Leynilögga var frumsýnd í vikunni og hefur hún nú formlega slegið öll met. Kvikmyndin Leynilöggan halaði inn 15,9 milljónum króna um liðna helgi sem gerir kvikmyndina að tekjuhæstu frumsýningu á íslenskri mynd frá upphafi.

Fanney Ingvars hélt barnaafmæli um helgina. 

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir hefur haft það gott á Spáni með fjölskyldunni síðustu daga. 

Camilla Rut er á fullu í ræktinni þessa dagana og er dugleg að leyfa fylgjendum sínum að fylgjast með því á Instagram. 

Listakonan og ljósmyndarinn Saga Sig á ýmsar gersemar í fataskápnum sínum.

Vala Eiríks útvarpskona á Bylgjunni er farinn af stað með nýtt verkefni. 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra fór á bjórhátíð um helgina.

Elísabet Gunnars átti langþráðan frídag með fjölskyldunni. Þau flökkuðu um miðbæ Reykjavíkur. 

Matgæðingurinn Linda Ben hélt upp á 33 ára afmælið sitt um helgina. 

Bubbi Morthens mætti í úlpu á Níu líf enda er farið að kólna í veðri hér á landi. 

Sveindís Jane Jónsdóttir var ánægð með leikinn á föstudag, þar sem landsliðið okkar náðu sér í örugg þrjú stig með 4-0 sigri. 


Tengdar fréttir

Bríet gerði áhorfendur agndofa í Hörpu

Söngkonan Bríet hélt tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu á föstudag. Á tónleikunum sýndi þessi listakona enn og aftur hversu ótrúlega hæfileikarík og fjölhæf hún er. 

Elín Metta frumsýnir stærsta stuðningsmanninn

Knattspyrnukonan Elín Metta Jensen birti skemmtilega mynd af Ými Grönvald á Instagram í treyju merktri Jensen. Á bakinu er einnig talan tíu, sem er númerið sem Elín Metta spilar með hjá liði Vals.

Leynilöggan halaði inn milljónir og bætti met Mýrinnar

Kvikmyndin Leynilöggan halaði inn 15,9 milljónum króna um liðna helgi sem gerir kvikmyndina að tekjuhæstu frumsýningu á íslenskri mynd frá upphafi. Mýrin í leikstjórn Baltasar Kormáks átti metið en miðar á myndina seldust fyrir 15,8 milljónir króna í október 2006.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.