Lífið

Paris Hilton klæddist sex ­kjólum í þriggja daga brúð­kaups­veislu

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Paris Hilton er gift kona. Hún gekk að eiga unnusta sinn Carter Reum á fimmtudaginn.
Paris Hilton er gift kona. Hún gekk að eiga unnusta sinn Carter Reum á fimmtudaginn. Instagram/Paris Hilton

Athafnakonan, hótelerfinginn og fyrrverandi raunveruleikaþáttastjarnan Paris Hilton er gift kona. Óhætt er að segja að öllu hafi verið tjaldað til þegar hún gekk að eiga athafnamanninn Carter Reum.

„Þetta var augljóslega ekkert minna en gorgeous. Gestirnir þarna voru bara stórstjörnur, Demi Lovato söng I Will Always Love You og fyrsti dansinn var tekinn við Bruno Mars - Just The Way You Are,“ segir Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir sem fer yfir allt það helsta í Hollywood í Brennslutei vikunnar á þriðjudögum

„Þau eru búin að vera vinir í yfir fimmtán ár en byrjuðu saman í lok árs 2019, þannig þau eru ekki búin að vera það lengi saman en „When you know - You know“.“

Sjá einnig: Paris Hilton trúlofuð

Brúðkaupið fór fram í Bel-Air í Los Angeles í húsi sem var í eigu afa Parisar sem lést fyrir tveimur árum. Brúðkaupsfögnuðurinn stóð yfir í þrjá daga og var gestum meðal annars boðið í tívolí á Santa Monica-bryggju daginn eftir brúðkaupið.

Klæddist fjórum kjólum á brúðkaupsdaginn

„Það má ekki gleyma því að hún var með fjögur fataskipti í brúðkaupinu!“ segir Birta Líf en alls klæddist Paris sex kjólum yfir brúðkaupshelgina.

Brúðkaupskjóllinn sjálfur sem Paris klæddist í athöfninni var hannaður af Oscar de la Renta. Kjóllinn var afar fágaður og klassískur langerma blúndukjóll sem náði upp í háls.

Þegar hjónin dönsuðu fyrsta dansinn klæddist Paris kjól eftir Ghalia Lav sem var í sannkölluðum Disney-prinsessu stíl. Til þess að toppa lúkkið enn frekar skartaði hún glitrandi kórónu við uppsett hárið.

Þegar leið á kvöldið skipti hún yfir í stuttan kjól sem einnig var úr smiðju Oscar de la Renta. Kjóllinn var „off-the-shoulder“ með fallegu blómahálsmáli.

Síðasti kjóll kvöldsins var glæsilegur síðkjóll eftir Pamelu Rowland. Kjóllinn var þakinn perlum og var hann aðsniðinn með áfastri slá yfir axlirnar.

Það var enginn önnur en Nicky Hilton, systir Parisar, sem var heiðursbrúðarmær. Paris skrifar fallega um systur sína á Instagram-síðu sinni þar sem hún segir hana vera sína bestu vinkonu og að hún hafi alltaf verið við hennar hlið, sama hvað.

„Sleikur og dry-hump“ hjá Kravis

Birta Líf segir einnig frá afmæli Travis Barker sem hefur verið fastagestur í Brennslutei vikunnar undanfarnar vikur.

„Hann hélt upp á 46 ára afmælið sitt. Það afmæli var náttúrlega bara fullt af sleik og dry-humpi með kærustu hans Kourtney Kardashian.“

Birta gerði heilan þátt um samband þeirra Kourtney og Travis í hlaðvarpi hennar og Sunnevu Einars, Teboðið.

„Ætli Travis Barker sé að þessu fyrir publicity af því ég til dæmis hef aldrei vitað hvað Blink 182 er, en núna tala ég um þennan gæja einu sinni í viku,“ segir Birta.

Þá var varla hægt að fjalla um fréttir úr Hollywood án þess að minnast á frelsi poppprinsessunnar Britney Spears.

„Ég myndi halda því fram að 12. nóvember, sem er dagurinn sem þetta varð opinbert, sé bara orðinn hinn opinberi Britney Spears-dagur.“

Hér að neðan má hlusta á Brennslute vikunnar en þar ræddi Birta einnig um nýju plötu Taylor Swift sem hefur verið á allra vörum síðustu daga og nýju plötu Adele sem væntanleg er á föstudaginn.

Klippa: Brennslute vikunnar: Paris Hilton gift kona og Britney frjáls

Tengdar fréttir

Paris Hilton trúlofuð

Athafnarkonan Paris Hilton er trúlofuð en hún tilkynnti það í dag á Instagram, á fjörutíu ára afmælisdegi sínum.

Kardashian og Barker trúlofuð

Bandaríska raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian og tónlistarmaðurinn Travis Barker eru trúlofuð. Þó það standi ekki skýrum stöfum í nýrri Instagram-færslu Kardashian þá tala myndirnar sannarlega sínu máli.

Kanye West orðaður við tuttugu og tveggja ára gamla fyrir­sætu

Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir fer yfir allt það helsta í Hollywood í Brennslutei vikunnar alla þriðjudagsmorgna á FM 957. Í morgun fór Birta yfir harmleikinn sem átti sér stað á Astroworld-tónlistarhátíðinni um helgina. Þá var einnig rætt um ný ástarsambönd þeirra Kim Kardashian og Kanye West sem virðast bæði vera að horfa fram á veginn.

Kim Kardashian orðuð við „Good Luck Chuck“ Hollywood

„Það voru svo margar sögur í vikunni, ég þurfti alveg að sleppa helling en ég sleppi ekki Kim Kardashian og Pete Davidson. Það fór bara eins og eldur í sinu. Þetta var crazy,“ segir Hollywood-spekingurinn Birta Líf Ólafsdóttir, sem fór yfir allt það heitasta úr heimi fræga fólksins vestanhafs í Brennslutei vikunnar í morgun.

Taylor Swift heldur áfram að toppa sig

Taylor Swift heldur sífellt áfram að gleðja aðdáendur sína með nýjum gullmolum. Í nótt gaf hún aftur út plötu sína Red, sem kom fyrst út árið 2012. Platan heitir núna RED (Taylor’s Version) og er hún enn betri en upprunalega útgáfan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.