Lífið

Ásta færð á Stóra sviðið

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vel sótt var á málþing um Ástu sem haldið var í Þjóðleikhúsinu.
Vel sótt var á málþing um Ástu sem haldið var í Þjóðleikhúsinu. Aðsent

Uppselt hefur verið á fjörutíu sýningar á verkið Ásta í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Því hefur verið ákveðið að færa sýninguna yfir á Stóra sviðið. 

Sýningin Ásta er eftir Ólaf Egil Egilsson. Hún hefur nú gengið fyrir fullu húsi í Kassanum frá því frumsýnt var síðasta haust. 

„Vegna mikillar eftirspurnar hefur nú hefur verið ákveðið að færa sýninguna á Stóra sviðið. Þegar er orðið uppselt á tvær sýningar á Stóra sviðinu en aukasýningum hefur nú verið bætt við,“ segir í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.

Með aðalhlutverk fer Birgitta Birgisdóttir. Ólafur Egill leiktýrir sjálfur sýningunni en aðstoðarleikstjóri og dramatúrgur er Andrea Elín Vilhjálmsdóttir. Um tónlistarstjórn sér Guðmundur Óskar Guðmundsson.  Hér fyrir neðan má heyra hlaðvarpsviðtal við Ólaf og Andreu um sýninguna. 

Hin dulúðuga listakona Ásta Sigurðardóttir (1930-1971) var lifandi goðsögn í bæjarlífi Reykjavíkur um miðbik síðustu aldar. Myndlist hennar og ritverk vöktu aðdáun en líka hneykslun, og oft urðu skilin á milli lífs þessarar hæfileikaríku en breysku konu og höfundarverks hennar óljós.

Ásta hikaði ekki við að ögra ríkjandi viðhorfum og fylgja kalli hjarta síns, en brenndi kertið í báða enda og féll frá langt fyrir aldur fram. Hún varð táknmynd hinnar frjálsu konu, kynfrelsis nýrra tíma og framúrstefnulistar en mætti fordómum og útskúfun og kynntist hinu dýpsta myrkri sorgar og örvæntingar. En saga Ástu er líka saga um vonir, langanir og drauma sem enn geta ræst.

„Í þessu nýja verki er svipmyndum af Ástu og skáldskap hennar fléttað saman. Matthildur Hafliðadóttir söngkona og hljómsveit Guðmundar Óskars Guðmundssonar flytja frumsamin lög við ljóð Ástu og endurskapa tíðarandann í tónum.“

Lagið Perluskel má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

„Í aðstæðum sem eru eiginlega óhugsandi“

„Ég er varla búin að átta mig á því að þetta sé að fara á Netflix um allan heim,“ segir Birgitta Birgisdóttir, en hún leikur í sjónvarpsþáttunum Katla. Þættirnir koma allir inn á streymisveituna Netflix á miðnætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.