Skýrist væntanlega í dag hvernig stjórnvöld hyggjast rannsaka Hjalteyrarmálið Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 24. nóvember 2021 12:10 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Það skýrist væntanlega í dag með hvaða hætti stjórnvöld koma að rannsókn á Hjalteyrarmálinu svokallaða. Vísir/Vilhelm Forsætisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið vinna saman að því með hvaða hætti stjórnvöld geta komið að rannsókn á starfsemi vist-og meðferðarheimila þar sem grunur er um að börn hafi orðið fyrir ofbeldi. Það skýrist væntanlega í dag hver niðurstaðan verður.
Síðustu daga hefur fólk stigið fram og lýst hræðilegu ofbeldi sem það varð fyrir á barnaheimli hjónanna Einars og Beverlyar Gíslason á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Hjónin voru síðar með dagvistun og leikskóla í Garðabæ á árunum 1998-2015. Eftir umfjöllun í fjölmiðlum um heimilið hafa bæjarstjórar á Akureyri og Garðabæ lýst yfir mikilvægi þess að starfshættir hjónanna verði rannsakaðir. Fram kom á vef Garðabæjar í gær að vinna væri hafin við að afla nánari upplýsinga um störf hjónanna í Garðabæ. Jón Björnsson sem var félagsmálastjóri á Akureyri gerði á sínum athugasemdir við starfsemi Hjalteyrarheimilisins hefur sagt eftir að málið kom upp að ósanngjarnt sé að rannsaka ekki heimilið. Halldór Þormar Halldórsson umsjónarmaður sanngirnisbóta sagði í fréttum okkar í gær að rétt væri að endurvekja vistheimilisnefnd vegna ásakana um illa meðferð á Hjalteyrarheimilinu en líka á öðrum heimilum sem vistuðu börn. Vistheimilisnefnd hafi ekki klárað öll málin sem komu upp. Ennþá á eftir að rannsaka margar ábendingar og heimili Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa meðal annars komið fram athugasemdir um illa meðferð á börnum á síðustu öld á Vöggustofu Thorvaldsen, barnaheimilinu Vorboðanum að Rauðhólum, í Laugarnesskóla, á upptökuheimili að Dalbraut í og vistheimili við Njörvasund en bæði síðastnefndu heimilin voru í Reykjavík. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í fréttum okkar í gær að full ástæða væri til að fara yfir málefni Hjalteyrarheimilisins. En ekki kom skýrt fram hver ætti að gera það. Fréttastofa hefur síðustu daga reynt að fá svör við hver eða hvort stjórnvöld hyggjast rannsaka illa meðferð á börnum á Hjalteyri og síðar feril hjónanna í Garðabæ. Í fyrirspurnum hefur komið fram að það sé á hendi dómsmálaráðuneytisins að ákveða hvort farið verður í slíka rannsókn. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur nú verið ákveðið að forsætisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið vinni saman að lausn í málinu. Það skýrist væntanlega í dag hver niðurstaðan verði.
Barnaheimilið á Hjalteyri Hörgársveit Akureyri Reykjavík Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Hafi verið látin dúsa í viku í kaldri kolakompu og hýdd með belti Kona sem var sem barn neydd til að dvelja á barnaheimilinu á Hjalteyri segir að hún hafi dögum saman og ítrekað verið lokuð inni, án matar og drykkjar, í kaldri kolakompu. Hún hafi verið misnotuð og beitt harkalegu líkamlegu ofbeldi. 23. nóvember 2021 19:31 „Full ástæða til að fara yfir málefni Hjalteyrarheimilisins“ Forsætisráðherra bendir á að athugasemdir hafi verið gerðar nokkrum sinnum gegnum tíðina við Hjalteyrarheimilið án þess að hjónin þar hafi verið stöðvuð. Hún telur fulla ástæðu til að rannsaka heimilið eftir það sem nú er komið fram. Það sé þó dómsmálaráðuneytið sem ákveði að taka upp slíka rannsókn. 23. nóvember 2021 15:32 Telur rétt að endurvekja vistheimilisnefnd vegna ásakana um illa meðferð á börnum Umsjónamaður sanngirnisbóta segir að nýjar ásakanir um illa meðferð barna á vistheimilum komi sífellt fram og því rétt að endurvekja störf vistheimilinefndar. Málin hafi ekki verið kláruð á sínum tíma. Hann hefur áránna rás fengið kvartanir um Hjalteyrarheimilið. 23. nóvember 2021 13:00 Vill láta rannsaka málefni Hjalteyrarheimilisins Bæjarstjóri Akureyrar telur að rannsaka eigi málefni barnaheimilisins á Hjalteyri eftir að fólk sem þar dvaldi sem börn hefur stigið fram. Þar lýsir fólkið hræðilegu kynferðislegu,líkamlegu og andlegu ofbeldi sem það varð fyrir. 22. nóvember 2021 21:30 Barnaverndarráð Íslands sópaði kvörtunum út af borðinu Fyrrverandi félagsmálastjóri Akureyrar segir Barnaverndarráð Íslands ekki hafa tekið kvartanir sínar um barnaheimilið á Hjalteyri alvarlega. Málinu hafi verið sópað út af borðinu. Hefði hann vitað af kynferðislega ofbeldinu sem nú hefur verið greint frá hefði málið alltaf verið kært til lögreglu. 22. nóvember 2021 18:40 Garðabær mun rannsaka dagheimili hjónanna frá Hjalteyri Bæjarstjóri Garðabæjar segir að starfsemi hjóna, sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratugnum, við barnagæslu í Garðabæ verði rannsökuð. Bærinn taki frásagnir um ofbeldi af hálfu hjónanna mjög alvarlega og starfsemi þeirra verði rannsökuð af viðeigandi aðilum. 22. nóvember 2021 15:23 „Þetta var hreinasta helvíti“ Maður sem sætti miklu ofbeldi af hálfu hjóna sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar segir stórundarlegt að hjónin hafi áfram fengið leyfi til að gæta barna í Garðabæ. Foreldrar barna sem voru með börn sín í vistun hjá þeim eru ósáttir við að Garðarbær hafi ekki stöðvað hjónin. 22. nóvember 2021 13:01 Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi tíðkaðist árum saman gagnvart börnum sem dvöldu hjá hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri í Hörgársveit á áttunda áratug síðustu aldar. Fólk sem þar var sem börn hefur ítrekað, án árangurs, reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá heimilið rannsakað. Prestar sem voru í barnaverndarnefndum á sínum tíma gáfu heimilinu samþykki sitt þrátt fyrir að hafa fengið ábendingar um að þar væri ekki allt með felldu. 21. nóvember 2021 19:56 Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Fleiri fréttir Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Sjá meira
Hafi verið látin dúsa í viku í kaldri kolakompu og hýdd með belti Kona sem var sem barn neydd til að dvelja á barnaheimilinu á Hjalteyri segir að hún hafi dögum saman og ítrekað verið lokuð inni, án matar og drykkjar, í kaldri kolakompu. Hún hafi verið misnotuð og beitt harkalegu líkamlegu ofbeldi. 23. nóvember 2021 19:31
„Full ástæða til að fara yfir málefni Hjalteyrarheimilisins“ Forsætisráðherra bendir á að athugasemdir hafi verið gerðar nokkrum sinnum gegnum tíðina við Hjalteyrarheimilið án þess að hjónin þar hafi verið stöðvuð. Hún telur fulla ástæðu til að rannsaka heimilið eftir það sem nú er komið fram. Það sé þó dómsmálaráðuneytið sem ákveði að taka upp slíka rannsókn. 23. nóvember 2021 15:32
Telur rétt að endurvekja vistheimilisnefnd vegna ásakana um illa meðferð á börnum Umsjónamaður sanngirnisbóta segir að nýjar ásakanir um illa meðferð barna á vistheimilum komi sífellt fram og því rétt að endurvekja störf vistheimilinefndar. Málin hafi ekki verið kláruð á sínum tíma. Hann hefur áránna rás fengið kvartanir um Hjalteyrarheimilið. 23. nóvember 2021 13:00
Vill láta rannsaka málefni Hjalteyrarheimilisins Bæjarstjóri Akureyrar telur að rannsaka eigi málefni barnaheimilisins á Hjalteyri eftir að fólk sem þar dvaldi sem börn hefur stigið fram. Þar lýsir fólkið hræðilegu kynferðislegu,líkamlegu og andlegu ofbeldi sem það varð fyrir. 22. nóvember 2021 21:30
Barnaverndarráð Íslands sópaði kvörtunum út af borðinu Fyrrverandi félagsmálastjóri Akureyrar segir Barnaverndarráð Íslands ekki hafa tekið kvartanir sínar um barnaheimilið á Hjalteyri alvarlega. Málinu hafi verið sópað út af borðinu. Hefði hann vitað af kynferðislega ofbeldinu sem nú hefur verið greint frá hefði málið alltaf verið kært til lögreglu. 22. nóvember 2021 18:40
Garðabær mun rannsaka dagheimili hjónanna frá Hjalteyri Bæjarstjóri Garðabæjar segir að starfsemi hjóna, sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratugnum, við barnagæslu í Garðabæ verði rannsökuð. Bærinn taki frásagnir um ofbeldi af hálfu hjónanna mjög alvarlega og starfsemi þeirra verði rannsökuð af viðeigandi aðilum. 22. nóvember 2021 15:23
„Þetta var hreinasta helvíti“ Maður sem sætti miklu ofbeldi af hálfu hjóna sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar segir stórundarlegt að hjónin hafi áfram fengið leyfi til að gæta barna í Garðabæ. Foreldrar barna sem voru með börn sín í vistun hjá þeim eru ósáttir við að Garðarbær hafi ekki stöðvað hjónin. 22. nóvember 2021 13:01
Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri Kynferðislegt, líkamlegt og andlegt ofbeldi tíðkaðist árum saman gagnvart börnum sem dvöldu hjá hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri í Hörgársveit á áttunda áratug síðustu aldar. Fólk sem þar var sem börn hefur ítrekað, án árangurs, reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá heimilið rannsakað. Prestar sem voru í barnaverndarnefndum á sínum tíma gáfu heimilinu samþykki sitt þrátt fyrir að hafa fengið ábendingar um að þar væri ekki allt með felldu. 21. nóvember 2021 19:56