Man City vann nauman sigur á Villa Park Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. desember 2021 22:25 Gabriel Jesus og Bernardo Silva fagna marki þess síðarnefnda. Bradley Collyer/Getty Images Manchester City vann 2-1 útisigur á Aston Villa er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Heimamenn voru nálægt því að jafna metin undir lok leiks. Fyrri hálfleikur leiksins á Villa Park í kvöld benti til lítils annars en öruggs sigurs gestanna frá Manchester-borg. Portúgalski miðvörðurinn Rúben Dias kom Man City yfir eftir sendingu Raheem Sterling á 27. mínútu og skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks bætti Bernardo Silva við öðru marka gestanna. Þessi skyndisókn hjá City og afgreiðslan hjá Bernardo Silva — Gummi Ben (@GummiBen) December 1, 2021 Staðan 0-2 í hálfleik og virtist sem gestirnir færu með þægilegan sigur af hólmi. Lærisveinar Steven Gerrard voru ekki alveg á sama máli og minnkaði Ollie Watkins muninn strax í upphafi síðari hálfleiks. Þó heimamenn hafi ekki vaðið í færum þurftu gestirnir samt að treysta á hinn magnaða Ederson undir lok leiks en hann varði meistaralega frá Carney Chukwuemeka þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Fór það svo að City vann 2-1 sigur og er því aðeins stigi á eftir toppliði Chelsea sem trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 33 stig að loknum 14 umferðum. Enski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Fótbolti