Slökun og hugarró ein vinsælasta jólagjöfin í ár Sky Lagoon 7. desember 2021 09:44 Sky Lagoon býður gjafabréf í lónið sem hægt er að para við vörur eins og saltskrúbb, rakakrem, olíu eða ilmkerti nú á sérstöku hátíðarverði, með allt að 20% afslætti. Sky Lagoon hefur laðað til sín þúsundir baðgesta. „
Eitt af því fallegasta við Sky Lagoon er að fólk gleymir stað og stund, gleymir að það er statt í miðri borg. Okkur þykir vænt um að heyra slíkar sögur því við lögðum upp með nákvæmlega það, að skapa stað í borginni þar sem fólk gæti komist út úr áreitinu og slakað algjörlega á,“ segir Dagný Hrönn Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Sky Lagoon. Dagný Hrönn Pétursdóttir framkvæmdastjóri Sky Lagoon. Sky Lagoon var opnað í apríl á þessu ári og er óhætt að segja það hafi slegið í gegn. Þúsundir baðgesta hafa þegar notið einstakrar upplifunar við sjávarsíðuna, endurnærðir á sál og líkama. Sjö skrefa Ritúalið nýtur sérstakra vinsælda en þá fara baðgestir úr heitu lóninu í kalda laug, þaðan í þurrgufu, þá gegnum endurnærandi regnúða og svo í heita vatnsgufu eftir að hafa skrúbbað líkamann með sérstökum saltskrúbbi með olíu. Gjafabréf í einstaka upplifun „Skrúbburinn skilar húðinni silkimjúkri en við sem búum í köldu loftslagi eins og hér á Íslandi þurfum að hugsa vel um húðina. Hita og kuldameðferðin er frábær fyrir æðakerfi og vöðva en ekki síður fyrir hugann og kallar fram hamingjuhormón í líkamanum. Út á þetta ganga jólagjafirnar okkar að bjóða gjafabréf í slökun og hugarró ásamt vinsælustu vörunum okkar,“ segir Dagný en Sky Lagoon býður gjafabréf í lónið sem hægt er að para við vörur eins og saltskrúbb, rakakrem, olíu eða ilmkerti nú á sérstöku hátíðarverði, með allt að 20% afslætti. „Okkar tilfinning er að fólk velji gjafir sem skila eigandanum upplifun í stað þess að kaupa enn einn hlutinn. Það er svo góður tilgangur með þessari gjöf. Við afhendum gjafirnar í fallegum öskjum til að setja undir jólatréð. Gjafasettin hafa hlotið svo góðar viðtökur að tvö þeirra eru uppseld og því bjóðum við nú gestum að koma til okkar og para saman gjafabréf og vörur að vild í gjafaöskjurnar.“ Vandlega hönnuð umgjörð Umgjörð lónsins, klettarnir og útsýnið spila ekki minna hlutverk í upplifun gesta en sjö skrefa Ritúalið. Hönnun byggingarinnar, lýsingin innahúss og allt efnisval er vandlega skipulagt til þess að kalla fram ákveðnar tilfinningar. Dagný segir gríðarlega rannsóknarvinnu liggja að baki og allir hafi lagst á eitt til að framkvæmdin gengi upp. Hugmyndafræðin að baki Sky Lagoon er að upphefja íslenska baðmenningu, náttúru og íslenska byggingasögu.Norris Niman „Það er sterkt teymi á bak við allt þetta verkefni og við erum ótrúlega stolt af því hve vel tókst til. Fyrsti útgangspunktur var alltaf manneskjan sjálf og hennar tilfinning, hvað hún heyrir og hvað hún sér og byggingin hönnuð í kringum það. Framkvæmdin var tæknilega flókin. Við gengum mjög langt í upplifunarhönnuninni og gáfum engan afslátt þar,“ segir Dagný. Það hefur sannarlega skilað sér og bæði innlendir og erlendir gestir sækja lónið heim. Framkvæmdin var tæknilega flókin. Við gengum mjög langt í upplifunarhönnuninni og gáfum engan afslátt þar,“ segir Dagný.Norris Niman „Hlutfallið er skemmtilega jafnt. Við erum afar þakklát fyrir viðtökur heimamanna en hugmyndafræðin að baki Sky Lagoon er að upphefja íslenska baðmenningu, náttúru og íslenska byggingasögu. Það að heimamenn taki okkur svona vel tökum við sem ákveðnum gæðastimpli. Margir koma aftur og aftur og því settum við í gang vöru sem heitir Multipassi, sem gefur sex heimsóknir á verði þriggja,“ segir Dagný. Nánar má kynna sér Sky Lagoon hér.
Heilsa Sund Jól Mest lesið Fegin að hafa valið flottasta kjólinn fyrir óvænta trúlofun Tíska og hönnun Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn Lífið Bakið er hætt að hefna sín Lífið samstarf Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Lífið Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Bíó og sjónvarp KK og Sinfó: Clint Eastwood mætti í Eldborg Gagnrýni „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Lífið Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Lífið Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Lífið Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Lífið samstarf Fleiri fréttir Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Viltu vinna spennandi vinninga í vorleik Vísis? Tilbúnir réttir úr smiðju verðlauna kokks Sumarið er komið á Boozt Að eiga tæki frá Stihl er lífsstíll Persónuleg gjafakort sem renna aldrei út Viltu vinna skemmtilegar gjafir fyrir sumardaginn fyrsta? Ný fjarlækningaþjónusta fyrir sykursýkissjúklinga á Selfossi Fullkomnar sögur fyrir páskafríið Sjá meira