Villareal síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum 9. desember 2021 20:17 Etienne Capoue skoraði annað mark Villareal í kvöld. Emilio Andreoli/Getty Images Villareal varð í kvöld seinasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með 2-3 útisigri gegn Atalanta. Gestirnir byrjuðu með látum og komust yfir strax á þriðju mínútu með marki frá Arnaut Danjuma. Etienne Capoue tvöfaldaði svo forystu gestanna stuttu fyrir hálfleik og staðan því 0-2 þegar gengið var til búningsherbergja. Arnaut Danjuma var svo aftur á ferðinni á 51. mínútu þegar hann kom gestunum í 0-3 og því orðið ljóst að heimamenn þurftu að skora fjögur til að tryggja sér annað sæti riðilsins. Ruslan Malinovsky og Duvan Zapata skoruðu sitt markið hvor fyrir heimamenn á seinustu tuttugu mínútum leiksins, en það dugði ekki til og 2-3 sigur Villareal því staðreynd. Villareal tryggði sér þar með annað sæti riðilsins og sæti í 16-liða úrslitum, en Atalanta er á leið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla